Stuðningur Miðju máls og læsis við foreldra

Teikninga af vegvísi sem táknar stefnur.

Miðja máls og læsis miðlar gagnlegum upplýsingum sem tengjast máluppeldi, læsi og fjölmenningarlegum starfsháttum til foreldra í Reykjavík. 

Við komum gjarnan á fundi hjá foreldrafélögum með fræðsluerindi. Hægt er að senda póst á mml@reykjavik.is

Brúarsmiðir

Hjá Miðju máls og læsis starfa brúarsmiðir. Brúarsmiðir eru fjöltyngdir sérfræðingar um skóla- og frístundastarf í Reykjavík. Hlutverk brúarsmiða er að brúa bil milli menningarheima og tungumála.

Salah er arabísku- og kúrdískumælandi brúarsmiður.
Kriselle er ensku- og filippseyskumælandi brúarsmiður.
Magdalena er pólskumælandi brúarsmiður.
Abraham er spænskumælandi brúarsmiður.
Oksana er úkraínskumælandi brúarsmiður.

Hægt er að óska eftir aðstoð brúarsmiðs með því að senda póst á mml@reykjavik.is 

Fjölmenning

Foreldrar af erlendum uppruna

Brúarsmiðir Miðju máls og læsis bjóða upp á ráðgjöf um máluppeldi barna sem alast upp með mörg tungumál. 

Brúarsmiðir hafa safnað gagnlegum upplýsingum í verkfærakistu fyrir foreldra með erlendan bakgrunn. Verkfærakistan er til á nokkrum tungumálum.

Teikning af litríkum skólatöskum.