Stafræn fræðsla
Stafræn fræðsla
Boðið verður upp á fjölbreytta fræðslu og vinnustofur milli kl. 10:50-12:00, sem fara allar fram á sama tíma í gegnum netið. Starfsfólk skráir sig í gegnum fræðslukerfið Torgið.
Tenglar á stafræna fræðslu eru hér fyrir neðan.
-Leiðbeiningar um innskráningu á Torgið eru neðst á síðunni.
-Leiðbeiningar um það hvernig ég tengist TEAMS?
Fræðsluflokkar
Félagsfærni og sjálfsefling
Læsi
Titill |
Lýsing |
---|---|
Íslenska sem annað tungumál - í mörg horn að líta |
Kynning á starfi og kennslu í íslensku sem öðru tungumáli í Háteigsskóla. |
Þetta reddast! |
Kynning á námsefninu Þetta reddast! sem er hugsað fyrir kennara sem kenna íslensku sem annað mál á öllum stigum grunnskólans. |
Vertu góð málfyrirmynd |
Fræðsla fyrir stuðningsfulltrúa og skólaliða um mikilvægi þess að vera góðar málfyrirmyndir og hvernig er best að láta börn lesa. |
Málþroskaröskun á mið- og unglingastigi |
Fræðsla um málþroskaröskun DLD fyrir kennara á mið- og unglingastigi. |
Millimenningarfræðsla - Úkraína og Pólland |
Kynning á starfi brúarsmiða Miðju máls og læsis og námskeiðinu Brú milli landa sem er millimenningarfræðsla. |
Lesum saman - (EN) |
Connecting Our Community Through Reading. Presentation of the Educational project Lesum saman, aimed at creating connections within Icelandic society. |
Hrynþjálfun hæglæsra barna |
Getur hrynþjálfun bætt lestrarhraða hæglæsra barna? Kynning á uppbyggingu og fyrirkomulag, rýnt í fræðin og hvatning til þátttöku. Áhorfendur eru beðnir um að hafa lítinn bolta við hendina hafi þeir áhuga á að vera með. |
Sköpun
Titill |
Lýsing |
Mixið - þróunarverkefni um færanlegar sköpunar- og tæknismiðjur, skapandi og fjölbreytt skil |
Kynning á þróunarverkefninu Mixinu sem starfrækt hefur verið í sex grunnskólum skólaárið 2023-2024. |
Taktur og texti |
Kynning á námsefni þar sem unnið er með tölvutónlist, takt, texta og framburð. |
Náttúra og listgreinar - samþætting |
Samþættingaverkefni náttúrufræði og myndlistar þar sem unnið er með jurtir í nærumhverfi á skapandi og vísindalegan hátt. |
AI as a powerful tool for self-discovering through fun and learning (EN) |
Lecture and workshop (in English) on how to combine learning English along with other subjects with AI technology and to understand pros and cons using AI in safe way. |
Heilbrigði
Titill |
Lýsing |
---|---|
Heilsueflandi grunnskóli - nýir gátlistar |
Fjallað verður um ramma fyrir Heilsueflandi grunnskóla, nýja gátlista, stuðningsefni og heilsueflandi.is |
Vellíðan fyrir öll í Heilsueflandi leikskóla |
Farið verður yfir grunnatriði markvissrar heilsueflingar í leikskóla og hvernig nota má tæki og tól frá embætti landlæknis til að halda utan um og draga fram allt það mikilvæga starf sem þegar er unnið í leikskólum borgarinnar. |
Hjóla, tjalda, sigla, skíða…ef í skólanum þér á vel að líða |
Kynning á verkefnunum Skíðað á skólatíma og Hjólað á skólatíma. Einnig verður farið yfir þau tækifæri og áskoranir sem felast í flutningi Miðstöðvar útivistar og útináms yfir á Menningar- og íþróttasvið. |
Matur í leikskólum - Góð ráð og mögulegar hindranir |
Dr. Ellen Alma Tryggvadóttir næringarfræðingur ræðir um þá fæðu sem er ráðlögð fyrir leikskólabörn og grunninn að baki þeim. Einnig verður rætt um góð ráð við gerð matseðla og áskoranir tengdar fæðuofnæmi/óþoli. |
Barnið sem virkur þátttakandi
Titill |
Lýsing |
---|---|
Rjúpnahæðaleiðin |
Kynning á sjálfræðisstefnu leikskólans Rjúpnahæð og kennsluaðferð í lýðræði, þar sem þátttaka og sjónarmið barnanna skiptir öllu máli og hvernig þau hafa áhrif á veru sína í leikskólanum. |
Lýðræði í skólastofunni - Nemendur móta bekkjarnámskrá |
Kynning á aðferð Ártúnsskóla til að gera nemendur virka þátttakendur í námi sínu með því að gefa þeim veigamikið hlutverk í mótun bekkjarnámskrár. Sagt verður frá kostum og áskorununum aðferðarinnar, hverskonar formúla er notuð, ásamt upplifun kennara, nemenda og foreldra. |
Leikur, nám og gleði |
Kynning á samstarfsverkefni fjögurra leikskóla í Reykjavík og Háskóla Íslands þar sem farið verður yfir áherslur verkefnisins. Sérstaklega verður fjallað um sjálfsprottin leik barna, þátttöku fullorðinna í leik barna og ólíka nálgun milli leikskóla. |
Barnasáttmáli í leikskóla |
Kynning á samstarfverkefni Háskóla Íslands, Unicef og fimm leikskóla í borginni sem vinna að réttindum barna í leikskólastarfi byggt á Barnasáttmalanum og dagskipulagi leikskólans. Í kjölfarið gefst tækifæri til að fara í hópa og ræða þátttöku barna í leikskólastarfi. |
Fagmennska og samstarf
Titill |
Lýsing |
---|---|
Heyrnarskert í skólanum |
Kynning um samstarfsverkefni Hlíðaskóla með Heyrnar- og talmeinastöð Íslands sem hefur það markmið að gera breytingar í átt að betri námsaðstæðum heyrnarskertra nemenda. Fjallað verður um hindranir og lausnir og hvaða ráðgjöf skólafólk geti sótt fyrir heyrnarskerta nemendur. |
Svo tala þau bara ensku... |
Ath! Búið að loka fyrir skráningu í Torginu. Vinnustofa sem fjallar um tækifæri og áskoranir í tengslum við málumhverfi barna, ungmenna og starfsfólks í skóla- og frístundastarfi. |
Inngilding og fullgildi í skóla- og frístundastarfi |
Farið yfir hvað hugtökin inngilding og fullgildi fela í sér; dæmi um inngildandi skóla- og frístundastarf. |
Innra mat og gæði kennslustunda í Borgaskóla |
Kynning á gátlistum leiðsagnarnáms: hvernig nýta má jafningjarýni og endurgjöf í innra mati. |
Gæði kennslu í grunnskóla |
Fjallað um ýmsar hliðar á gæðum kennslu, einkenni og leiðir til að efla hana og þátttakendur æfa sig í að ræða og þekkja ákveðna þætti í kennslustarfinu. |
Lærdómssamfélag Náttúrutorgsins |
Kynning á Náttúrutorginu sem er starfssamfélag náttúrufræðikennara og lærdómssamfélaginu í kringum það. |
Valdeflandi nám: Listin að nota leiðsagnarnám til að ná árangri með unglingum |
Ugla er samþætting náms í Víkurskóla og á við elsta stig grunnskóla. Þar er kafað í ýmis samfélagsmálefni, náttúrufræði og lært á tæknina í gegnum bæði íslensku og ensku með aðferðum leiðsagnarnám að leiðarljósi. Nemendur koma með stutt innlegg þar sem þau segja frá sinni reynslu af uglum og hvernig leiðsagnarnám snýr að þeim. |
Krefjandi hegðun barna: samstarf milli kennara og stuðningsfulltrúa |
Almenn fræðsla um krefjandi hegðun barna; hvað er til ráða, hvernig hlutverk stuðningsfulltrúa fléttast þar inn og mikilvægi þess að auka samstarf og samráð milli kennara og stuðningsfulltrúa. |
Hvernig innleiðum við Menntatæknilausnir í grunnskólastarfi á næstu árum? |
Í þessu erindi verður farið yfir landslagið í menntatækni, hvaða lausnir er verið að nota og hvaða ólíku nálgunum er beitt við hönnun og þróun menntatæknilausna. |
Hugsandi kennslurými í stærðfræði |
Ferðalag stærðfræðiteymis Víkurskóla við innleiðingu hugsandi kennslurýmis í stærðfræði (e. Thinking classroom in mathematics) |
Nurture |
Nurture lítur til þess að mæta félagslegum, tilfinningalegum og andlegum þörfum nemenda, starfsfólks og fjölskyldna til að skapa öruggi í náms- og starfsumhverfi þar sem öll geta þrifist. |
Torgið
Torgið er fræðslukerfi Reykjavíkurborgar þar sem allt starfsfólks borgarinnar getur sótt fræðslu.
Þú skráir þig inn á Torgið með Reykjavíkurnetfangi þínu og lykilorði.
Ef þú manst ekki lykilorðið skaltu hafa samband við næsta yfirmann.
Velkomin á Torgið! from Reykjavíkurborg on Vimeo.