Leiðb(einingar) - Quote

Quote / Tilvitnun

Quote er notað til að brjóta upp texta með beinum tilvitnununum. Mikið notað í fréttum en einnig í texta á öðrum efnissíðum.

Ekki þarf að setja gæsalappir utan um textann því hönnunin setur gæsalappir og áherslulínu fyrir framan textann.

Hægt er að velja á milli "Short Quote" sem notar stærra letur en megintexti og "Long Quote" sem notar smærra letur en megintexti.

Þá er líka hægt að geta heimilda með því að setja inn nafn þess sem vitnað er í og vísa á uppruna heimildarinnar með vefslóð.

Þegar tekst að innleiða líkanið að fullu mun það skapa aukið gegnsæi og sveigjanleika í borgarkerfinu.

Óskar J. Sandholt, sviðsstjóri þjónustu- og nýsköpunarsviðs

Í miðstöðinni vinna starfsfólk og sjálfboðaliðar þrotlausa vinnu að tryggja hinsegin ungmennum öruggt rými í jákvæðu andrúmslofti þar sem þau geta verið þau sjálf án þess að upplifa fordóma eða útskúfun… 

segir í umsögn um verkefnið

Það er svo mikil orka í börnunum og við getum ekki beðið eftir því að stíga á svið í Hörpu og flytja lagið okkar.

Hljómsveitin Celebs

Orðin eru kastalar okkar Íslendinga. Í fámenni og fátækt týndum við aldrei manndómi okkar. Við gleymdum aldrei að setja í orð – hinn eina varanlega efnivið sem við eigum – allan hag okkar og alla hugsun. Einmitt þess vegna hefur okkur reynst svo létt verk að skapa okkur fjölskrúðuga nútímamenningu.

Vigdís Finnbogadóttir, innsetningarræða 1980