Leiðb(einingar) - Grid Row

Grid Row / Tveir dálkar

Grid Row hefur aðallega verið notað til að birta myndbönd vegna skorts á eining fyrir myndbanda albúm. Þá hefur verið sett eitt myndband í hvern iFrame í hvorn dálk og svo bætt við samskonar einingum ef myndböndin eru fleiri en tvö.

Von er á einingu sem verður nokkurs konar myndbanda albúm sem getur leyst þessa einingu af hólmi.

Grid Row hefur líka verið notað fyrir myndband og texta eða mynd og texta. Nú er komin betri og fallegri eining sem getur gert það sama Island Text & Photo/Video.

Ef þessi eining er notuð fyrir texta og mynd / myndband er best að hafa textann vinstra megin.

  • Til þess að setja inn myndband þarf að nota iFrame og setja inn embed kóða.
  • Myndir eiga að vera 890x500 px að stærð.

Athugið að ekki er gott að vinna með þessa einingu í frontend editing. Betra að fara í bakenda til að bæta við eða uppfæra.

Upplifun íbúa af lyfjaskömmturum.

Upplifun Gunnars af lyfjaskömmturum.

Upplifun Ingibjargar af lyfjaskömmturum.

Upplifun Ragnheiðar af lyfjaskömmturum.

Nýsköpun í Reykjavík

Nýsköpun er ekki skrautfjöður í hatti.

Hún er hluti af sjálfsmynd Reykjavíkur og mótar hvernig við sem búum og störfum í borginni nálgumst viðfangsefnin okkar.

Við ætlum að skapa jarðveg þar sem nýjar hugmyndir geta blómstrað.

Atvinnu- og nýsköpunarstefna Reykjavíkurborgar 2022-2030

Keldur

Framundan er uppbygging á nýju og vel tengdu íbúahverfi í Reykjavík. Markmiðið er að á Keldum rísi spennandi nútímahverfi sem byggir á vistvænum samgöngum og stuðlar að kolefnishlutlausu borgarsamfélagi. Uppbyggingin er í samvinnu Reykjavíkurborgar og Betri samgangna. Verkefnið er liður í samgöngusáttmálanum og miðar að því að flýta uppbyggingu framtíðarhverfis á Keldum sem og framkvæmdum við Borgarlínu. Áætlaður ferðatími með Borgarlínu frá Keldum í miðborgina er um 20 mínútur.

Loftmynd af Keldum.
Horft í áttina að Grafarvogi.