Framkvæmdir í Hagaskóla

Umfangsmiklar framkvæmdir standa yfir í Hagaskóla sem miða að því að byggja upp húsnæði sem hæfir nútíma kennsluháttum með heildstæðri hönnun og góðri virkni fyrir nemendur og kennara.
Framkvæmdir hófust í september 2022 og er áætlað að lokafrágangi verði lokið sumarið 2024
Undirbúningur
Hafið
Lokið

Skýringarmyndir

Hvað verður gert?

Aðalbygging skólans er í endurbyggingu. Eftir ítarlega greiningarvinnu hefur verið ákveðið að stórt og nútímalegt hús verði reist á skólalóðinni til að mæta fjölgun barna í hverfinu og umfangsmeiri starfsemi skólans. Tveggja til þriggja hæða nýbygging er í forhönnun. Um töluverða stækkun er að ræða en áætluð stærð nýrrar byggingar er um 3.100 m2.

Hvað mun þetta kosta?

Kostnaður er áætlaður 4.600 milljónir króna en þar af er kostnaður við endurgerð aðalbyggingar 1.200 milljónir króna- við það hefur bæst kostnaður vegna mikilla lóðaframkvæmda, ákveðið var að endurgera þurfti stærri hluta af aðalbyggingu og miklar hækkanir á byggingarvístitölu hafa orðið síðan frumkostnaðaráætlun var gerð.

Hvar er kennt á meðan?

Á meðan framkvæmdum á vor-og haustönn 2022 og vorönn 2023  var kennt í bráðabirgðahúsnæði  við Ármúla, í Korpuskóla og Dunhaga álmu.

Öll skólastarfsemi Hagaskóla var komin á lóð Hagaskóla haustið 2023.

Hvernig gengur?

Mars 2024

Unnið er að fullnaðarfrágangi skólastofa, frágangi lóðar og klæðningar að utan.

Stefnt er að því að öllum frágangi ljúki sumarið 2024

Haustið 2023

Allt skólastarf er komið á lóð Hagaskóla í vesturbæ Reykjavíkur. Skólabyrjun frestaðist um nokkra daga til að hægt væri að klára framkvæmdir við C-álmu færanlegra kennslustofa og standsetja efri tvær hæðir í aðalbyggingu. Einnig er kennt í Dunhaga álmu og íþróttahúsinu. 

Í annarri viku október er vonast til að hægt verði að taka í notkun stofur í kjallara aðalbyggingar sem ætlaðar eru fyrir verk- og listgreinar. Einnig má búast við að lengri verið komist í endanlegum frágangi á efri hæðunum tveimur.

Einnig er unnið að því að ljúka framkvæmdum í áföngum í A og B álmum færanlegra kennslueininga og að þær verði teknar í notkun um leið og hægt er. Um er að ræða hágæða einingar sem standast ströngustu öryggiskröfur, aðgengiskröfur og koma til móts við þarfir nútímaskólastarfs. Búist er við að öllum helstu framkvæmdum og frágangi við aðalbyggingu og annað húsnæði á lóðinni verði lokið um áramótin 2023-2024. 

Forsaga

Hagaskóli var reistur á árunum 1957-62 og er þörf er á viðhaldi og endurbótum á húsnæði skólans. Mygla greindist í skólanum og var í kjölfarið farið í greiningarvinnu á endurbótum og uppbyggingu. Gerðar voru þrjár tillögur um framtíðarskipulag skólans og greint á milli þeirra út frá kostnaði, gæðum og menntastefnu Reykjavíkurborgar.

Vantar þig meiri upplýsingar?

Áhersla er lögð á góða upplýsingamiðlun á framkvæmdatímanum.

  • Umhverfis- og skipulagssvið Borgartúni 12-14 105 Reykjavík s. 411 1111
  • Skóla- og frístundasvið Borgartúni 12-14 105 Reykjavík s. 411 1111

Hægt er að hafa samband í tölvupósti á netföngin usk@reykjavik.is og sfs@reykjavik.is ef einhverjar spurningar vakna.

Síðast uppfært 12.03.2024