Ferli umsóknar um NPA
Fyrsta skref er að bóka símtal. Í símtalinu er farið yfir stöðu þína og þarfir. Í framhaldi af því færðu boð í viðtal hjá ráðgjafa þar sem tekin er sameiginleg ákvörðun um hvaða stuðningur hentar og umsókn undirrituð. Umsókn um NPA skal fylgja staðfesting á fötlunargreiningu, sjálfsmat, örorkumat og SIS-mat ef við á.
Hvað gerist næst?
Þegar undirrituð umsókn liggur fyrir er næsta skref formlegt mat á stuðningsþörf. Matið tekur mið af stöðu þinni með tilliti til eftirfarandi þátta:
- Færni, geta og styrkleikar
- Félagslegar aðstæður og tengslanet
- Virkni og þátttaka í samfélaginu
- Hugsanlegar afleiðingar sem töf á stuðningi hefur
- Annar stuðningur
Ef formlegt mat leiðir í ljós að stuðningsþörf þín er minni en 15 klukkustundir á viku eða að þú uppfyllir ekki öll skilyrði er umsókn synjað og þér bent á annan stuðning sem stendur til boða.
Sé umsókn samþykkt vinnur ráðgjafi samkomulag um vinnustundir í samvinnu við þig. Samþykktar umsóknir fara á bið eftir úthlutun. Á biðtíma er haft reglulegt samráð við þig og upplýst um stöðu mála og þá þjónustu sem stendur til boða á biðtímanum.
Hvernig er nýjum NPA samningum úthlutað?
Sérstakt teymi úthlutar nýjum NPA samningum. Í kjölfarið er gerður einstaklingssamningur við notanda sem byggir á samkomulagi um vinnustundir. Einnig er gerður samstarfssamningur við umsýsluaðila sem hefur lokið námskeiði um NPA og fengið starfsleyfi frá Gæða- og eftirlitsstofnun félagsþjónustu og barnaverndar (GEF). Notandi getur sjálfur verið umsýsluaðili.