Útiveitingar á borgarlandi

Teikning af fólki við allskonar iðju á matarbakka.

Viltu bjóða viðskiptavinum þínum út að borða? Allir veitingastaðir sem vilja bjóða gestum sínum að þiggja áfengar veitingar úti þurfa útiveitingaleyfi. Sumir staðir geta notað eigin lóð en allir geta sótt um afnot af borgarlandi. Rekstraraðilar sem selja ekki áfengar veitingar er heimilt að staðsetja borð og stóla upp við húsvegg án frekari leyfa. 

Hvað er borgarland?

Allt svæði utan einkalóða telst til borgarlands, stéttir, garðar, torg og götur til dæmis.

Hvaða leyfi þarf ég?

  • Rekstrarleyfi með heimild fyrir útiveitingum
  • Afnot af borgarlandi

Hvernig sæki ég um?

1. Umsókn

Umsókn um afnot af borgarlandi er fyllt út

 

2. Teikning

Teikning af útiveitingasvæði

 

Teikning af útisvæðinu sem sótt er um eru hlaðin upp með umsókn á Mínum síðum. Teikningin þarf að sýna öll mál, fjölda borða og stóla. Ekki eru gerðar kröfur um að teikning sé gerð af arkitekt. 

3. Samþykktarferli

Samþykktarferli umsóknar um afnot af borgarlandi

 

Skrifstofa samgangna og borgarhönnunar metur teikninguna og fáist hún samþykkt er rekstraraðila sendur samningur til rafrænnar undirritunar.

4. Rekstrarleyfi

Rekstrarleyfi með heimild fyrir útiveitingum

 

Eftir að borgarhönnun samþykkir umsóknina sendir þú undirritaðan samning til sýslumanns ásamt teikningu. Sýslumaður kemur henni í umsagnarferli og berist engar athugasemdir gefur sýslumaður út rekstrarleyfi með heimild fyrir útiveitingum. Þá mátt þú byrja að veita út. 

 

  • Rekstraraðili sem sækir um rekstrarleyfi í fyrsta skipti þarf að gæta þess að tilgreina sérstaklega að sótt sé einnig um leyfi til útiveitinga

 

  • Rekstraraðili sem eru með gilt rekstrarleyfi sem nær ekki til útiveitinga, þurfa að sækja um breytingu á rekstrarleyfi svo leyfið ná til útiveitinga. 

Algengar spurningar