Hinseginfræðsla fyrir leikskólastig

Það eru hinsegin börn og börn sem tilheyra hinsegin fjölskyldum í öllum skólum og eru þau alls konar, rétt eins og önnur börn. Hinsegin börn eiga það þó sameiginlegt að falla út fyrir það sem telst normið eða viðmiðið hvað varðar kynhneigð, kyntjáningu, kyneinkenni og/eða kynvitund. Hér er verkfærakista með námsefni í hinseginfræðslu fyrir leikskólastig sem inniheldur ýmiskonar efni s.s. bækur, kennsluhugmyndir og myndbönd. 

Ofur mjúkar hetjur / Ofur sterkar prinsessur

Hér má finna litabækur með prinsessum og ofurhetjum sem afbyggja staðalmyndir. Bækurnar eru eftir sænsku listakonuna Linnea Johanson. Viðfangsefni: Jafnrétti - Hinsegin - Staðalímyndir - Kynhlutverk - Trans

Bækur á íslensku sem gott er að eiga og geta nýst vel

Fjölskyldan mín er bók sem fjallar um að fagna þeim fjölbreytileika sem finna má í fjölskyldum nútímans og fræða börn um ólík fjölskylduform. 

Júlían er hafmeyja er fallega myndskreytt bók um Júlían sem elskar hafmeyjur og hefur gaman af því að klæða sig upp eins og hafmeyja. Bókinni fylgja kennsluleiðbeiningar. Þessi bók er einnig til á ensku.

Prinsarnir og fjársjóðurinn er saga um prinsana Huga og Magna sem giftast í lok sögunnar.

Þegar Rósa var Ragnar / Þegar Friðrik var Fríða er bók sem ætlað er að skapa umræður með ungum börnum um kynhlutverk og jafnrétti. Með bókinni fylgja kennsluleiðbeiningar. 

Vertu þú er bók sem segir litríkar sögur af fjölbreytileikanum og hvetur til fordómaleysis og víðsýni.

 

Bækur á ensku sem nýst geta vel

 A family is a family is a family er bók á ensku um fjölbreytileg fjölskyldu form. Viðfangsefnið er jafnrétti, hinsegin og staðalímyndir. 

A plan for pops er bók á ensku um ungan dreng sem á samkynhneigða afa sem hann ver miklum tíma með. 

And tango makes three er bók sem hægt að nota til að tala um hinsegin málefni við yngstu kynslóðina. Viðfangsefni: Jafnrétti - Hinsegin

Are you a boy or a girl? er bók á ensku sem nýtist vel til að tala um hinsegin málefni við yngstu kynslóðina. 

Heather has two mommies fjallar um barn sem á tvær mæður. Viðfangsefni: Jafnrétti - Hinsegin

I am Jazz er bók á ensku um trans stelpuna Jazz. Bókinni fylgja kennsluleiðbeiningar.

Introducing Teddy : a gentle story about gender and friendship  fjallar um kyn og vináttu. Viðfangsefni: Jafnrétti - Hinsegin - Trans

 It feels good to be yourself : a book about gender identity fjallar um kynvitund og getur hjálpað til við að ræða kynvitund af virðingu.

It's okay to be different er bók á ensku sem fagnar fjölbreytileikanum. Viðfangsefni: Jafnrétti - Hinsegin - Trans

Jacob's new dress er bók á ensku sem fjallar um hann Jacob sem finnst gaman að vera í kjólum.  Viðfangsefni: Jafnrétti - Hinsegin - Trans - Staðalímyndir

Julián at the wedding er fallega myndskreytt  um Julián sem elskar hafmeyjur. Þetta er framhaldsbók og segir frá því þegar Julián fer í brúðkaup.

Kyn er allskonar er falleg myndasaga um kynvitund og kyntjáningu.

Love makes a family fjallar um fjölbreytileikann og hvað það er sem gerir fjölskyldu að fjölskyldu. Viðfangsefni: Jafnrétti - Hinsegin

Morris Micklewhite and the tangerine dress er bók um ungan dreng sem elskar að vera í uppáhalds kjólnum sínum og lætur fordóma annarra ekki stöðva sig.

Not all princesses dress in pink er bók sem sýnir prinsessur gera fjölbreytta hluti í allskonar fötum svo sem að keppa í íþróttum og nota verkfæri. Viðfangsefnið er jafnrétti, hinsegin, staðalímyndir og kynhlutverk. 

Phoenix goes to school: a story to support transgender and gender diverse children fjallar um trans stelpuna Phoenix og hennar fyrsta dag í nýjum skóla.

Sparkle boy er bók á ensku um strákinn Casey sem elskar allt sem glitrar og glóir. Viðfangsefnið er jafnrétti, hinsegin, staðalímyndir og kynhlutverk. 

The sissy duckling er bók á ensku um andarunga sem fer sínar eigin leiðir. Viðfangsefni: Jafnrétti - Hinsegin - Staðalímyndir - Kynhlutverk - Trans

When Aidan became a brother er bók á ensku um trans strák.

Who are you? : the kid's guide to gender identity fjallar um kynvitund og getur hjálpað til við að ræða kynvitund af virðingu.

Er ég strákur eða stelpa?

 

Hér er á ferðinni námsefni fyrir elstu leikskólabörnin til að skoða kynjahlutverk og staðalímyndir. Sagan er tekin úr bók Írisar Arnardóttur „Eru fjöllin blá?“. Henni fylgja spurningar sem hægt er að spyrja börnin eftir lesturinn og búa til umræður

Hinsegin börn og fjölskyldur

Mikilvægt er að gera ráð fyrir því að foreldrar, forsjáraðilar og fjölskyldur nemenda geta verið hinsegin. Huga þarf að ýmsum þáttum til þess bæði að tryggja það að hinsegin fjölskyldur séu teknar með í reikninginn, finni fyrir því að þær séu velkomnar og gert sé ráð fyrir þeim, en einnig til þess að nemendur upplifi sig ekki út undan eða frávik fyrir það að eiga hinsegin fjölskyldu. Það þarf að huga að því hvernig fjölskyldur eru ávarpaðar, hverjum er gert ráð fyrir á eyðublöðum, hvernig þeim er boðið að taka þátt í skólastarfi, hvernig talað er um fjölskyldur í skólastofunni o.s.frv. Einnig þarf að huga að minnihlutaálagi hjá hinsegin foreldrum og forsjáraðilum.

Það er því mikilvægt að það sé skýrt að hinsegin fjölskyldur séu velkomnar. Rétt eins og með nemendur þá er vert að spyrja sig: „Hvernig vita hinsegin foreldrar og fjölskyldur að þau séu velkomin og að hér sé að finna stuðningsríkt umhverfi?“ Einnig getur vel verið að starfsfólk skólans eigi börn, foreldra, systkini eða aðra fjölskyldumeðlimi sem eru hinsegin og er því mikilvægt að tryggja hinseginvæna orðræðu. 

Starfsstaðir Reykjavíkurborgar geta sótt um Regnbogavottun hjá Mannréttinda- og lýðræðisskrifstofu.