Matvælamarkaðir og tímabundin starfsleyfi
Matvælamarkaðir (margir sölubásar með matvæli á tilteknum stað) og sjálfstæðir sölubásar með matvæli (tilheyra ekki matvælamarkaði) þurfa starfsleyfi frá Heilbrigðiseftirliti sveitarfélaga. Sölubásar sem tilheyra matvælamarkaði þurfa, hver um sig, að hafa starfsleyfi frá heilbrigðiseftirliti. Samkvæmt lögum um matvæli er óheimilt að hefja starfsleyfisskylda starfsemi liggi starfsleyfi ekki fyrir.
Tímabundin starfsleyfi
Matvælamarkaðir og sölubásar með matvæli sem starfræktir eru utandyra í Reykjavík skulu hafa afnotaleyfi frá umhverfis og skipulagssviði Reykjavíkurborgar. Fáist afnotaleyfi skulu rekstraraðilar (fyrirtæki eða einstaklingar) sækja um tímabundið starfsleyfi til Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur. Tímabundin starfsleyfi geta gilt að hámarki í þrjá mánuði. Í starfsleyfi koma fram sértæk starfsleyfisskilyrði fyrir viðkomandi markað/sölubás/sölutjald. Starfsleyfinu fylgja einnig almenn starfsleyfisskilyrði.
17. júní
Sérstakar reglur gilda um rekstur sölubása/sölutjalda í miðborg Reykjavíkur á 17. júní. Skátasamband Reykjavíkur hefur starfsleyfi frá Heilbrigðiseftirliti Reykjavíkur til reksturs markaða þennan dag og leigir Skátasamband Reykjavíkur áhugasömum aðilum afnot af sölutjöldum. Skulu aðilar sem hafa afnot af sölutjöldum Skátasambandsins uppfylla þau skilyrði sem sett eru í reglum og starfsleyfisskilyrðum og þurfa þeir ekki að sækja um sérstakt tímabundið starfsleyfi heilbrigðiseftirlits. Þeir aðilar sem leigja ekki sölutjöld af Skátasambandi Reykjavíkur skulu uppfylla starfsleyfisskilyrði og sækja um tímabundið starfsleyfi til Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur.
Almenn starfsleyfi
Fyrir stærri matvælamarkaði með fasta staðsetningu (svo sem Kolaportið) gilda sérstök starfsleyfisskilyrði sem samþykkt eru af heilbrigðisnefnd Reykjavíkur. Gildistími almennra starfsleyfa fyrir matvælamarkaði og sölubása/sölutjöld eru 12 ár.
Götu- og torgsöluleyfi
Sækja skal um leyfi fyrir tímabundinni sölustarfsemi sem fer fram á almannafæri svo sem á torgum, almenningsgörðum og gangstéttum.
Tækifærisleyfi
Sækja þarf um tækifærisleyfi hjá sýslumanninum á höfuðborgarsvæðinu fyrir skemmtun eða einstökum atburði sem fram fer á stað sem ekki hefur rekstrarleyfi. Einnig þarf leyfi fyrir tímabundnum áfengisveitingum.
- Leyfi til skemmtunar eða atburða sem ekki er ætlað er að standa lengur en í sólarhring skal sækja um með viku fyrirvara til leyfadeildar sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu.
- Leyfi til skemmtunar eða atburðar sem ætlað er að standa lengur en sólarhring skal sækja um með minnst 30 daga fyrirvara.
- Sé skemmtun eða atburður sérstaklega umfangsmikill, svo sem gert ráð fyrir um það bil 3.000 manns og kalli á mikinn undirbúning, skal sækja um leyfi með minnst þriggja mánaða fyrirvara.
Í umsókn um tækifærisleyfi skal gerð grein fyrir hvers konar samkomu er sótt er um leyfi fyrir, það er skóladansleik, tónleikahaldi, dansleik, útihátíð, þorrablóti og þess háttar.
- Ef um er að ræða viðburð á borgarlandi þar sem boðið er upp á matvæli, þarf að sækja um tímabundið starfsleyfi.
- Ef um er að ræða viðburð á borgarlandi, og ekki er boðið upp á matvæli þarf ekki tímabundið starfsleyfi.
Matvælaeftirlitið veitir umsagnir um tækifærisleyfi til sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu.
Nánari upplýsingar
Leyfisgjöld Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur: Sjá gildandi gjaldskrá Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur.
Allar nánari upplýsingar um rekstrarleyfi, þ.m.t. tækifærisleyfi, veitir leyfadeild sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu, Dalvegi 18, 200 Kópavogi í síma 458 2000 eða á netfanginu leyfi@syslumenn.is.