Samningaviðræður vegna sölu á Perlunni, Toppstöðinni og bílastæðum í Hörpu

Fjármál

Perlan í Öskjuhlíð, grár himinn, smá tré í forgrunni

Viðræður standa yfir um sölu á Perlunni til Perlunnar þróunarfélags ehf, sem verið hefur leigutaki í Perlunni síðastliðin átta ár. Þá verður gengið til samningaviðræðna við hæstbjóðendur í Toppstöðina og 125 bílastæði í bílastæðakjallara Hörpu.

Perlan, ásamt tveimur tönkum, var auglýst til sölu í júlí síðastliðnum. Söluferlinu var skipt í tvö þrep og kveðið á um að lágmarksverð væri 3,5 milljarðar króna. Tveir aðilar skiluðu inn umsókn á fyrsta þrepi en Perlan þróunarfélag ehf. skilaði eitt inn tilboði á öðru þrepi. Tilboðsverð er 3.507.161.172 krónur en í kauptilboðinu var kveðið á um ákveðna fyrirvara sem nú eru til skoðunar. Samningaumleitanir hafa gengið samkvæmt áætlun miðað við eðli og umfang söluandlagsins, en Perlan er eitt helsta kennileiti Reykjavíkurborgar.

Toppstöðin verður miðstöð útivistar og jaðaríþrótta

Toppstöðin, Rafstöðvarvegi 4, var auglýst til sölu í byrjun júní. Fimm tilboð bárust í eignina og samþykkti borgarráð í dag að gengið yrði til samningaviðræðna við hæstbjóðanda, Hilmar Ingimundarson fyrir hönd óstofnaðs félags, UUT. Næst hæsta tilboðið í húsnæðið átti Landsvirkjun, 300.000.000 krónur, en tilboð Landsvirkjunar upp á 725.000.000 krónur innihélt einnig tilboð í byggingarrétt og gatnagerðargjöld á sér lóð.

Tilboðin voru metin á grundvelli verðs annars vegar, sem taldi til 75 stiga og hinsvegar á grundvelli fyrirfram skilgreindra matsþátta sem töldu til 25 stiga. Tillaga UUT hlaut flest stig samkvæmt mati matsnefndar og er meðal annars talin falla vel að hugmyndum Reykjavíkurborgar um sjálfbærni, hönnun, kolefnislosun og önnur umhverfissjónarmið. Samkvæmt tillögunni verður húsnæðið gert hæft fyrir útleigu og reist þar miðstöð útivistar sem hýst getur jaðargreinar íþrótta og aðra starfsemi sem stutt getur við eflingu útivistar og tómstunda í Elliðaárdal. Er áætlaður byggingartími frá undirritun samnings og afhendingu þrjú ár.

Toppstöðin í Elliðaárdal, áin og gróður í forgrunni

Tilboð Reykjavík Development ehf. talið hagstæðast

Loks voru í júní auglýst til sölu 125 bílastæði í bílastæðakjallara Hörpu og heimilaði borgarráð í dag að gengið yrði frá kaupsamningi við hæstbjóðanda, Reykjavík Development ehf. Við söluna var viðhaft tveggja þrepa kerfi og bárust fimm tilboð á þrepi eitt en tvö á þrepi tvö. Kaldalón hf. bauð 750.000.000 krónur og Reykjavík Development ehf. 752.500.000 krónur. Eftir yfirferð tilboða er talið að tilboð Reykjavík Development ehf. sé hagstæðara hvað varðar fyrirvara í tilboði, greiðslutilhögun og fjárhæð. Málið fer til endanlegrar afgreiðslu borgarstjórnar.

Bréf fjármála- og áhættustýringarsviðs um Toppstöðina.

Bréf fjármála- og áhættustýringarsviðs um bílastæði í Hörpu.

Bréf fjármála- og áhættustýringarsviðs um Perluna.