Stórsókn í húsnæðismálum eldra fólks

Undirritun viljjayfirlýsingar

Til stendur að byggja á þriðja þúsund íbúðir auk hundruða hjúkrunarrýma á uppbyggingareitum sem hafa verið skilgreindir sem sérstakir „lífsgæðakjarnar” fyrir eldri borgara í Reykjavík. Borgarstjóri skrifaði á föstudag undir viljayfirlýsingar um uppbyggingu á fjórum stöðum í borginni þar sem þróuð verður áhugaverð ný nálgun á húsnæði og þjónustu fyrir fólk á besta aldri. 

„Framundan er stórfelld uppbygging lífsgæðakjarna víða um borgina. Á teikniborðinu eru allt að 2600 nýjar íbúðir auk hjúkrunarrýma. Aldurssamsetning þjóðarinnar er að breytast og landinn að eldast, því er mikilvægt að haga uppbyggingu fyrir eldra fólk í borginni í takt við það, segir Einar Þorsteinsson borgarstjóri.

Kallað var eftir samstarfsaðilum um þróun og uppbyggingu á lífsgæðakjörnum í maí 2023 en nú eru fjögur teymi farin af stað. „Það er ánægjulegt að sjá að þessir aðilar hafa unnið sínar tillögur af metnaði í samtali og samráði við félög eldri fólks en einnig sótt sér alþjóðlega ráðgjöf við þróun og útfærslu lífsgæðakjarnana sem eru ólíkir þó allir miði að því að búa eldra fólki hamingjuríkt ævikvöld. Samhliða auknu framboði á íbúðum fyrir eldra fólk losnar um sérbýli og stærri eignir í öllum hverfum borgarinnar yngri kynslóðum til góða. Það er allt á fullu í Reykjavík og miklu máli skiptir að uppbygging og þróun borgarinnar haldi örugglega áfram!

Lífsgæðakjarnar í þróun:

  • Klasi - Breiðhöfði 10 eða Norður-Mjódd
  • Þorpið - vistfélag - á lóð félagsins á Ártúnshöfða
  • Þingvangur - Köllunarklettsvegur 3 og Hlésgata 1
  • Reitir - Loftleiðasvæðið við Nauthólsveg

Hvernig vill eldra fólk búa?

Lífsgæðakjarnar er heiti yfir nýja nálgun á húsnæði sem er einkum hugsað fyrir eldra fólk þar sem áhersla er á fjölbreytt búsetuform. Eignaríbúðum, leiguíbúðum og jafnvel hjúkrunarrýmum er raðað saman í aðlaðandi umhverfi með aðgengi að fjölbreyttri þjónustu og í bland við íbúðarhúsnæði fyrir aðra aldurshópa. Markmiðið er að tryggja áhugavert og aðlaðandi umhverfi, samveru og öryggi um leið og komið er til móts við ólíkar þarfir.

Frá undirritun viljayfirlýsinga

Skrifað var undir á fyrirhuguðum uppbyggingarlóðum og eru myndirnar teknar við það tilefni. Með viljayfirlýsingunni lýsa aðilar og Reykjavíkurborg því yfir að þeir séu tilbúin til að taka þátt í skipulagsvinnu og viðræðum varðandi þróun lífsgæðakjarna. Meta á hvort að það sé fýsilegt að byggja upp lífsgæðakjarna á lóðunum. Stefnt er að því að niðurstaða liggi fyrir innan sex mánaða frá undirritun yfirlýsingarinnar. Niðurstaðan verður lögð fyrir sérstakan starfshóp sem stofnaður hefur verið innan Reykjavíkurborgar vegna verkefnisins.

Klasi

Klasi undirritun

Ingvi Jónasson, framkvæmdastjóri Klasa skrifaði undir fyrir hönd félagsins vegna mögulegrar uppbyggingar þess. 

Ingvi fagnar því að taka þátt í mótun á lífsgæðakjarna með Reykjavíkurborg.  „Félagið hefur áður byggt upp slíkan kjarna og hefur það að markmið að halda þeirri þróun áfram.  Kjarni þar sem horft er til aukinna lífsgæða eldri borgara, þar sem öll þjónusta er í næsta nágrenni og í göngufjarlægð ásamt góðu aðgengi að fjölbreyttum samgöngumátum.  Uppbygging kjarna miðlægt á höfuðborgarsvæðinu, sem einfaldar daglegt líf, veitir aukið öryggi, tækifæri á þátttöku í félagsstarfi og hvetur til aukinnar virkni í samfélaginu“.

Reitir 

Guðni Aðalsteinsson, forstjóri Reita ásamt borgarstjóra

Guðni Aðalsteinsson, forstjóri Reita skrifaði undir fyrir hönd félagsins vegna mögulegrar uppbyggingar á Loftleiðasvæðinu við Nauthólsveg. 

Guðni segir að uppbygging lífsgæðakjarna á Loftleiðasvæðinu falli mjög vel að nýrri stefnu Reita um að vera leiðandi afl í þróun og uppbyggingu á samfélagslegum innviðum. 

„Reitir vinna sem stendur að undirbúningi að umbreytingu á skrifstofubyggingu Icelandair í 84 rýma hjúkrunarheimili en félagið hefur einnig lagt fram hugmyndir um nýja íbúðaruppbyggingu á svæðinu þar sem gert er ráð fyrir um 120 íbúðum, blöndu af þjónustuíbúðum og almennum leiguíbúðum auk þjónustukjarna sem myndi m.a. hýsa matvöruverslun og heilsutengda starfsemi.

Við teljum að með því að blanda saman ólíku búsetufyrirkomulagi, verslunum, veitingum og aukinni þjónustu, sé komin uppskrift og grundvöllur að öflugu samfélagi eldri borgara á þessum frábæra stað í höfuðborginni.

Við fögnum frumkvæði Reykjavíkurborgar um að setja þennan málaflokk í forgang og hlökkum til samstarfsins við Reykjavíkurborg.“

Þingvangur 

Þingvangur - undirritun

Kristján Magnason, Pálmar Harðarson, framkvæmdastjóri Þingvangs og Jóhann G. Jóhannsson skrifuðu undir vegna mögulegrar uppbyggingar á þróunarreit á Laugarnesi.

Pálmar Harðarson, framkvæmdastjóri Þingvangs, segir ánægjulegt að geta hafið þróunarferlið á Köllunarkletti. „Markmiðið er að móta vistvænt og fallegt borgarhverfi og skapa aðlaðandi svæði til búsetu. Innan lífsgæðakjarnans geta rúmast allt að 1500 íbúðir, sem samanstanda að stórum hluta af íbúðum fyrir 60 ára og eldri, hjúkrunarheimili, öldrunarþjónustu og annarri heilsutengdri þjónustu. Að auki kann að vera ákjósanlegt að lífsgæðakjarninn innihaldi fjölbreytta búsetukosti fyrir aðra aldurshópa, ásamt viðeigandi þjónustu, svo sem leikskóla. Við sjáum fyrir okkur nútímalega byggð í líflegu borgarhverfi við sjávarsíðuna, með grænum og skjólgóðum almenningssvæðum, veitinga- og kaffihúsum, hótelum, skrifstofuhúsnæði, ásamt annarri þjónustu sem íbúar geta sótt innan hverfis. 

Það er mikil tilhlökkun fyrir því að hefja vinnu við þróunarferlið svo unnt sé að mæta þörfum markaðarins um viðvarandi eftirspurn eftir vönduðum íbúðum á frábærum stað í borginni.”

Þorpið vistfélag  

Þorpið vistfélag - undirritun

Guðný María Jóhannsdóttir, framkvæmdastjóri skipulags og umhverfismála og Sigurður Smári Gylfason, framkvæmdastjóri skrifuðu undir fyrir hönd Þorpsins vistfélags vegna mögulegrar uppbyggingar á einni af lóðum félagsins á Ártúnshöfða.

 „Í okkar huga er Ártúnshöfði frábær staðsetning fyrir nýjan Lífsgæðakjarna vegna nálægðar við náttúruna og alla þá þjónustu sem er til staðar á Höfðanum eins og heilsugæsla, verslun, veitingar ofl.  Í þessum nýja borgarhluta, sem byggður verður á umhverfisvottuðu skipulagi, verða græn svæði innan um þétta byggð auk þess sem gert er ráð fyrir Krossmýrartorgi þar sem stoppistöð Borgarlínu verður staðsett. Með tilkomu Borgarlínu mun Ártúnshöfði verða beintengdur miðborginni og ætla má að í nýja borgarhlutanum verði iðandi menning og mannlíf fyrir austurhluta borgarinnar. Við höfum átt í viðræðum við Grundarheimilin um samstarf þar sem þau yrðu rekstraraðili hjúkrunarheimilis og þjónustuíbúða,“ segir Sigurður Smári. 

Tengt efni: