Hvernig vill eldra fólk búa?

Fólk í miðborginni á sólríkum degi.

Lífsgæðakjarnar. Hugmyndafræði og fyrirmyndir að lífsgæðakjörnum eldri borgara er til umfjöllunar á kynningarfundi um uppbyggingu húsnæðis fyrir eldra fólk. Fundurinn verður haldinn í Ráðhúsi Reykjavíkur miðvikudaginn 27. september og hefst hann kl. 9:00. Boðið verður upp á létta morgunhressingu frá kl. 8:30 

Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri býður til fundarins og er upphafserindi hans Lífsgæðakjarnar – umfangsmikil uppbygging í þágu eldri borgara í Reykjavík.  

Fyrirmyndir og reynsla annarra 

Þrír erlendir gestafyrirlesarar með góða innsýn í borgarskipulag og húsnæðisuppbyggingu, m.a. fyrir eldra fólk, deila reynslu sinni af fyrirkomulagi uppbyggingar og reksturs húsnæðis.   

  • Per Schulze  er yfirmaður yfir Virke hjá PensionDanmark. Virke  eru verkefni sem heyra undir „50+ bofællesskaber“ en það húsnæðisform hefur PensionDanmark lífeyrissjóðurinn byggt upp eða ætlar að byggja. Sjóðurinn hefur gefið út verkefnalýsingu í þessum málum. Per hefur verið einn af aðal drifkröftunum í gerð deilihúsnæðis fyrir eldri borgara eða „senior bofællesskaber“ eins og Danirnir kalla það . Hann var áður hjá Realdania þar sem hann leiddi stefnumótandi verkefni. Hann hefur líka starfað sem þróunarstjóri hjá By og Havn og hefur því víðtæka reynslu í þessum málum.  

  • Maria Vassilakou fyrrum varaborgarstjóri Vínarborgar og vann þar einkum við borgarþróun og skipulagsmál. Hún vinnur í dag sem borgarþróunarráðgjafi hjá Vienna Solutions og tekur meðal annars þátt í þróun Keldnalands. Erindi Mariu heitir Best Case Vienna: The Role of Social Housing in the World’s Nr. 1.   

  • Brent Toderian fyrrum skipulagsstjóri Vancouver og Calgary og ráðgjafi hjá Toderian Urban Works. Brent tekur, eins og Maria, þátt í þróun Keldnalands og hefur einnig áralanga reynslu af flóknum viðfangsefnum á sviðum borgarþróunar, samgangna og breytingastjórnunar.  

Kynningar gestafyrirlesara verða á ensku, sem og pallborð með þeim og borgarstjóra. Þar gefst kostur á að spyrja hina erlendu gesti og borgarstjóra.  

Góð viðbrögð við auglýsingu um lífsgæðakjarna 

Reykjavíkurborg auglýsti á liðnu vori eftir samstarfsaðilum og hugmyndum tengdum lífsgæðakjörnum. Viðbrögð voru góð og bárust 23 svör. Þar af voru nokkur frá uppbyggingaraðilum sem vilja byggja upp í anda hugmynda um lífsgæðakjarna á sínum lóðum. Fimm þeirra munu segja frá hugmyndum sínum á kynningarfundinum, en það eru: 

  • Reitir  
  • Köllunarklettur 
  • Þorpið vistfélag 
  • Klasi 
  • Íþaka 

Hvernig vill eldra fólk búa? 

Hagsmuna- og félagasamtök hafa einnig áhuga á aðkomu að uppbyggingu og þróun lífsgæðakjarna. Í síðasta hluta dagskrárinnar verður pallborð undir yfirskriftinni Hvernig vill eldra fólk búa? Þátttakendur eru fulltrúar samtaka eldri borgara og stjórnendur hjá Reykjavíkurborg.  

Dagskrána í heild má sjá á vefsíðu viðburðarins Lífsgæðakjarnar framtíðarinnar.  Fundinum verður streymt inn á þá síðu og þar verður upptaka aðgengileg að honum loknum, auk kynningarglæra sem fyrirlesarar nota.  

Tengt efni: