Framkvæmdir Reykjavíkurborgar og Veitna á Rauðarárstíg

Framkvæmdir Samgöngur

Skýringarmynd af framkvæmdum við Rauðarárstíg.

Nú fer að líða að því að fyrstu áfangar á Hlemmsvæðinu komist á framkvæmdastig. Annars vegar áfanginn frá Snorrabraut að Hlemmtorgi sem hefst í júlí í sumar og hins vegar yfirborðs- og gatnahönnun fyrir Rauðarárstíg norður af Hlemmi. Það svæði er hannað sem vistgata í einum fleti og allt rýmið verður hellulagt. Greint er frá því hér:

Frá Bríetartúni að Gasstöðinni á Hlemmi

Gatnamót við Bríetartún verða upphækkuð og akstursrými afmarkað með lágum tveggja og fjögurra sentímetra háum kantsteini. Gert er ráð fyrir hönnun götu í einum fleti og að akstursrýmið verði hellulagt. Rauðarárstígur verður lokaður til suðurs við Gasstöðina á Hlemmi og með snúningshring fyrir fólksbíla í botni götunnar. Rafhleðslustæði eru nyrst í götunni og sleppistæði fyrir leigubíla.

Meðfram húsaröð við Rauðarárstíg verður aðkomusvæði íbúðarhúsanna þar sem útfæra má í samráði við húseigendur tröppur, gróðurkassa með klifurgróðri og hellusvæði. Bekkir afmarka svæðið næst húsunum. Afvötnun hellusvæða verður í rennustein og vatnsrásir með ristarloki. Regnbeð verða á torgsvæði næst Bríetartúni og meðfram göngusvæðum. Götutré með trjáristum verða meðfram götunni og regnbeð með fjölbreyttum gróðri. Lýsing í götunni verður með 4-5 metra háum vönduðum glýjufríum LED götuljósum sem dreifa lýsingu á götuflötinn. Hjólagrindur verða í samræmi við miðborgarstefnu Reykjavíkur. Næst torgsvæðinu og Hlemmi verða stæði fyrir hreyfihamlaða.

VSÓ Ráðgjöf hannaði þennan hluta Rauðarárstígsins í samstarfi við umhverfis- og skipulagssvið Reykjavíkurborgar. Sjá kynningarmyndir.

Gott aðgengi að inngöngum 

Útboð fyrir þessa framkvæmd verða opnuð 30. maí og framkvæmdir ættu að geta hafist seinni hluta júnímánaðar. Breytingin hefur þau áhrif á Strætó að leiðir 16 og 17 munu ekki lengur stoppa við Rauðarárstíg heldur færast að Hlemmi Mathöll.

Lokanir fyrir bílaumferð á Rauðarárstíg munu taka gildi um leið og framkvæmdir hefjast en aðgengi að gönguleiðum verður gott og aðgengi á gangstéttinni heldur sér mest allan tímann.

Töluverð klöpp er í Rauðarárstíg sem þarf að losa og verður verktakanum gefinn kostur á bæði sprengingum og fleygun. Sprengingar verða notaðar til þess bæta framvindu og að stytta tímann sem framkvæmdirnar taka. Gera má ráð fyrir hávaða á vinnutíma í um það bil þrjá mánuði eða frá lok júní og út september en þessi tímaáætlun verður skýrari um leið og verkáætlun verktaka liggur fyrir. Verklok eru áætluð vorið 2023.

Lokanir og hjáleiðir

Rauðarárstígur verður lokaður vélknúinni umferð frá Bríetartúni að Hverfisgötu.

  1. Bílstjórar á leið að Hlemmi er beint austur Laugaveg við Katrínartún.
  2. Bílstjórar á leið vestur Bríetartún að Snorrabraut er beint um Þórunnartún og Borgartún.
  3. Bílstjórar á Snorrabraut á leið austur Bríetartún er beint um Borgartún.

Tenglar og upplýsingar