Alþingiskosningar 2024

Kosningar

Unnið að uppsetningu kjörklefa í Ráðhúsi Reykjavíkur í dag
Tveir menn skoða teikningar í Tjarnarsal þar sem verið er að setja upp kjörklefa

Alþingiskosningar fara fram laugardaginn 30. nóvember 2024. Kjörstaðir í Reykjavík eru opnir kl. 9:00–22:00. Allar upplýsingar um framkvæmdina má nálgast í s. 411-4915 og á kosningar@reykjavik.is

Ef þú ert ekki viss um hvort þú sért á kjörskrá þá má fletta því upp á heimasíðu Reykjavíkurborgar um alþingiskosningar 2024 eða í kjörskrárstofni á vef Þjóðskrár.

Kjósendur gera grein fyrir sér á kjörstað með því að framvísa skilríkjum. Skilríki með mynd og kennitölu teljast fullgild skilríki. Kjósandi sem mætir skilríkjalaus á kjörstað getur leitað til hverfiskjörstjórnar og fengið aðstoð við að láta sannreyna hver hann er.

Yfirkjörstjórn Reykjavíkur hefur aðsetur í Ráðhúsinu á meðan á kjörfundi stendur. Yfirkjörstjórnir Reykjavíkurkjördæma norður og suður hafa aðsetur í Laugardalshöll á meðan á talningu stendur. Fram að því hafa þær aðsetur í Ráðhúsinu.

Kjörstaðir í Reykjavík

Kjörstaðir í Reykjavík eru öllum aðgengilegir.

Við alþingiskosningarnar 2024 eru 25 kjörstaðir í Reykjavík. Sjá alla kjörstaði

Talning atkvæða fer fram í Laugardalshöll. Talning hefst kl. 22:00 og er öllum opin. Streymt verður frá talningunni á www.reykjavik.is/kosningar.

Kosning utan kjörfundar á Íslandi

Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar er hafin hjá sýslumönnum vegna alþingiskosninga þann 30. nóvember 2024.

Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar við embætti Sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu fer eingöngu fram í Holtagörðum á 1. hæð.

Upplýsingar um atkvæðagreiðslu hjá öðrum sýslumannsembættum.

Kosning utan kjörfundar erlendis

Kjósendur þurfa að hafa samband við sendiráð eða ræðismann í viðkomandi landi til að vita hvar og hvenær er hægt að kjósa.

Hér má finna lista af íslenskum sendiráðum og ræðismönnum.

Ef kjósandi er í vafa um hvar og hvernig eigi að kjósa erlendis er best að hafa samband við borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins í gegnum hjalp@utn.is eða í síma +354 5459900.

Kjörsókn

Á kjördag eru settar inn tölur um kjörsókn á klukkutíma fresti.

Allar upplýsingar varðandi kosningar í Reykjavíkurborg eru veittar í síma 411-4915 og á netfanginu kosningar@reykjavik.is.