Umferðaröryggi bætt við gatnamót Miklubrautar og Grensásvegar

Miklubraut

Á næstu dögum verður ráðist í framkvæmdir við gatnamót Miklubrautar og Grensásvegar með það að markmiði að bæta umferðaröryggi, sýnileika og aðgengi fyrir gangandi og hjólandi vegfarendur. Áætlað er að verkinu ljúki um mánaðamótin september-október. 

Nánar um framkvæmdina

  • Settar verða nýjar, upphækkaðar gönguþveranir á fjórum stöðum við gatnamótin, þar sem umferð er hleypt til hægri af aðalbraut, eða við svokölluð hægribeygju framhjáhlaup. 
  • Lýsing verður bætt en settir verða upp ljósastaurar og götulampar vegna gangbrautarlýsingar. 
  • Endurbætur verða gerðar á miðeyjum og aðstöðu fyrir gangandi og hjólandi vegfarendur.
  • Einnig á að koma fyrir nýjum niðurföllum.
  • Fara þarf í jarðvinnu og yfirborðsfrágang í lok framkvæmda.

Tímabundnar breytingar á umferðarskipulagi

Framkvæmdum verður skipt í fjóra áfanga og loka þarf einu framhjáhlaupi í einu meðan á vinnu stendur. 

Öryggi vegfarenda

Ökumönnum er bent á að fylgjast vel með merkingum á svæðinu og virða tímabundnar umferðarráðstafanir Sérstaklega verður hugað að öryggi gangandi og hjólandi vegfarenda og verða göngu- og hjólaleiðir merktar sérstaklega meðan á framkvæmdum stendur.

Markmið framkvæmdarinnar er að bæta umferðaröryggi, sýnileika og aðgengi gangandi og hjólandi vegfarenda við gatnamót Miklubrautar og Grensásvegar.

Sambærilegar öryggisaðgerðir voru gerðar við gatnamót Kringlumýrarbrautar og Miklubrautar árið 2024.

Um er að ræða samstarfsverkefni Vegagerðarinnar og Reykjavíkurborgar sem heyrir undir samgöngusáttmálann.