Reykjavíkurkortið verður stafrænt- notendur setja saman sitt eigið kort

Grafísk mynd sem sýnir stafræna Reykjavíkurkortið.

Reykjavíkurborg hefur opnað fyrir nýja stafræna lausn sem einfaldar aðgang að fjölbreyttri þjónustu borgarinnar. Með nýju stafrænu korti geta notendur sjálfir sett saman sitt eigið aðgengi að afþreyingu og þjónustu, allt á einum stað í símaveskinu.

Stafrænn aðgangur að sundlaugum, söfnum, Ylströnd og Fjölskyldu- og húsdýragarði

Reykjavíkurkortið er sveigjanleg lausn þar sem hver og einn velur hvaða þjónusta er virk á kortinu og greiðir fyrir hana samkvæmt gildandi verðskrá. Þar má meðal annars velja aðgang að sundlaugum, söfnum, Ylströndinni í Nauthólsvík og Fjölskyldu- og húsdýragarðinum. Kortið er því ekki ein föst pakkalausn heldur persónubundið aðgengiskort sem byggir á vali notandans.

„Reykjavík er komin í símann. Loksins!“ segir Steinþór Einarsson sviðsstjóri menningar- og íþróttasviðs. „Með nýju Reykjavíkurkorti geta íbúar og gestir valið þá þjónustu sem hentar þeim og haft aðganginn alltaf við höndina.“

Til að byrja með er stafræna kortið aðgengilegt í afgreiðslum borgarinnar, þar sem notendur geta fengið kortið útgefið og sett það upp. Hægt er að nálgast þjónustuna í sundlaugum og söfnum Reykjavíkurborgar, í afgreiðslu Ylstrandarinnar og í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum. Ekki verður hægt að kaupa stafrænt kort beint á netinu á þessu stigi en stefnt er að því á síðari stigum.

Fyrir þau sem eiga plastkort og vilja fá stafrænt kort verða útskiptin án endurgjalds út árið 2026. Að öðru leiti fer verð á stafrænu korti eftir gildandi verðskrá hverju sinni. Athygli er vakin á því að ekki er hægt að vera með bæði plastkort og stafrænt kort samtímis.

Hluti af stafrænni vegferð

Stafræna Reykjavíkurkortið er hluti af stafrænni vegferð Reykjavíkurborgar þar sem unnið hefur verið markvisst að því að bæta þjónustu og einfalda aðgengi fyrir íbúa og gesti. Lausnin svipar að mörgu leyti til stafrænna bókasafnskorta sem margir þekkja nú þegar.

Frekari upplýsingar um Reykjavíkurkortið:
https://reykjavik.is/reykjavikurkort

Ný gjaldskrá 

Opnað hefur verið fyrir afgreiðslu á nýja kortinu en jafnframt er vakin athygli á nýrri gjaldskrá sem tekur gildi 5. maí næstkomandi. Frá gildistöku hennar lækkar ársgjald í sundlaugar Reykjavíkur, á Ylströnd og í Fjölskyldu- og húsdýragarð. Jafnframt verður þá opnað fyrir nýjar, hagstæðar áskriftarleiðir sem miða að því að gera reglulega notkun enn aðgengilegri fyrir notendur.

Frekari upplýsingar um nýja gjaldskrá:
https://reykjavik.is/frettir/2026/breytt-gjaldskra-sundlauga-ylstrandar-og-fjolskyldu-og-husdyragards

Stafræna Reykjavíkurkortið, grafísk mynd á síma
Svona mun stafræna Reykjavíkurkortið líta út á síma.