Nýr skúlptúr við Grensásveg
Vegfarendur hafa áreiðanlega tekið eftir skemmtilegum skúlptúr þegar farið er um Suðurlandsbrautina við Grensásveg. Þetta er skúlptúr myndlistarkonunnar Rósu Gísladóttur, Stanslaus, sem var valinn til uppsetningar við nýbyggingu á Grensásvegi 1 í samstarfi lóðarhafa og Reykjavíkurborgar að undangenginni samkeppni um listaverk á lóðinni. Var hún unnin í samstarfi lóðarhafa og Reykjavíkurborgar með fulltingi Sambands íslenskra myndlistarmanna og hafði Listasafn Reykjavíkur umsjón með verkefninu.
Kennileiti fyrir svæðið
Verkið Stanslaus var valið úr innsendum tillögum en í umsögn dómnefndar segir meðal annars að verkið kallist á við bogalínur hússins á áhrifaríkan hátt. Hluti verksins er fagurlitað gler og mun skúlptúrinn njóta sín jafnt að nóttu sem degi með fallegri lýsingu. Reikna má með að verkið verði kennileiti fyrir bygginguna og nærliggjandi svæði og áhugaverður hluti af götumynd Grensásvegar, hins nýja húss og mikilvægra gatnamóta, þar sem fjöldi akandi, hjólandi og gangandi vegfarenda á daglega leið um.