Útilistaverkið Rif vígt í Vesturvin
Útilistaverkið Rif eftir listakonuna Önnu Júlíu Friðbjörnsdóttur var formlega vígt í vikunni við hátíðlega athöfn í Vesturvin, nýrri íbúðabyggð á gamla Héðinsreitnum í Vesturbæ Reykjavíkur. Með verkinu sameinast Reykjavíkurborg og lóðarhafar um að efla list í almannarými og skapa vandað og lifandi umhverfi fyrir íbúa og gesti borgarinnar.
Borgarstjóri bauð gesti velkomna og þakkaði fyrir framlagið.
Verkið Rif var valið í kjölfar samkeppni um útilistaverk í Vesturvin. Haustið áður var myndlistarfólki boðið að taka þátt í forvali að lokaðri samkeppni þar sem áhersla var lögð á listræn gæði, samhengi við staðinn og aðkomu almennings að verkinu.
Rif er gagnvirkt útilistaverk í formi áttavita sem dregur innblástur sinn bæði af umhverfi sínu og sögu staðarins, meðal annars með vísunum í lífríki hafsins, siglingafræði og skipasmíði. Verkið er bronsafsteypa af hvalbeini sem stendur á snúningslegu á steyptri terrazzoskífu með mósaíkívafi. Gestir og gangandi geta snúið beininu í mismunandi áttir og lesið upplýsingar sem greyptar eru í skífuna, og tekið þannig virkan þátt í upplifun verksins.
Anna Júlía Friðbjörnsdóttir (f. 1973) býr og starfar í Reykjavík. Hún vinnur með fjölbreytta miðla í verkum sem fjalla um samtímaleg og söguleg málefni. Verk hennar eru oft tilraunakennd og birtast einkum í formi skúlptúra og innsetninga þar sem umbreyting efna, kerfa og miðlunar er könnuð á fjölþættan hátt.
Með Rifi bætist við áhugavert og aðgengilegt listaverk í borgarrými Reykjavíkur sem eykur gæði staðarins og hvetur til samveru, forvitni og samtals.