Úthlutun leikskólaplássa fyrir haustið hefst 3. mars

Skóli og frístund

Börn að leika í sandkassa.

Úthlutun leikskólaplássa fyrir haustið 2025 hefst í öllum leikskólum borgarinnar, bæði borgarreknum og sjálfstætt starfandi, þann 3. mars næstkomandi. Að stærstum hluta er verið að úthluta þeim plássum sem losna þegar heill árgangur barna hefur grunnskólagöngu.

Sjálfstætt starfandi í fyrsta sinn með í Völu

Sjálfstætt starfandi leikskólar munu í fyrsta sinn úthluta plássum í gegnum Völu og verður sú úthlutun á sama tíma og í borgarreknum leikskóla. Allar umsóknir um leikskóladvöl þurfa að berast í gegnum Völu, hvort heldur það sé umsókn í borgarrekna leikskóla eða sjálfstætt starfandi leikskóla. Foreldrar sem hafa nú þegar sótt um í sjálfstætt starfandi leikskóla þurfa að gera það aftur í gegnum Völu. Einnig geta foreldrar sem sótt hafa um í Völu í borgarrekna leikskóla breytt núverandi umsókn og bætt við sjálfstætt starfandi skólum í umsóknina.

Í borgarrekna leikskóla er úthlutað eftir kennitöluröð, þau elstu fyrst og svo koll af kolli. Unnið er með umsóknir barna sem fædd eru í febrúar 2024 og fyrr. Einu undantekningarnar á kennitöluröð eru þau börn sem hafa fengið samþykktan forgang í leikskóla, til dæmis vegna fötlunar eða félagslegra aðstæðna. Í sjálfstætt starfandi leikskóla gilda almennt sömu reglur um röðun á biðlista og í borgarreknum leikskólum, sjá í reglum um leikskólaþjónustu. Aftur á móti verður heimilt, fyrir úthlutun leikskólaplássa fyrir haustið 2025, að sjálfstætt starfandi leikskólar geti innritað eftir þeim reglum sem í gildi hafa verið hjá þeim. Samkvæmt samningi við sjálfstætt starfandi leikskóla er forgangur fyrir börn með lögheimili í Reykjavík sem velja sjálfstætt starfandi leikskóla í fyrsta vali á tímabilinu 1. mars - 15. apríl.

Mikilvægt að foreldrar yfirfari umsóknir fyrir 3. mars

Innritun hefst 3. mars 2025 og frá þeim degi verður unnið úr umsóknum sem hafa borist, til 15. apríl 2025. Á meðan verður ekki tekið á móti nýjum umsóknum og ekki hægt að breyta innsendum umsóknum fyrr en að tímabilinu loknu. Fyrstu boð um pláss verða send út fljótlega eftir að innritun hefst. Nokkrar vikur tekur að úthluta þeim plássum sem að losna í haust. Mikilvægt er að foreldrar og þau sem fara með forsjá barna yfirfari sína umsókn fyrir 3. mars.

Fram að 3. mars nk. verður hægt að nota Leikskólareikninn til að fá áætlaða spá um stöðu barns á biðlista. Hann verður aftur á móti lokaður á meðan unnið er úr stærstum hluta umsókna fyrir næsta haust, frá 3. mars til 1. september 2025.

Leikskólareiknirinn er einfaldur í notkun. Fæðingardagur barns er einfaldlega sleginn inn í leitarvél ásamt hverfi og er þá reiknuð út áætluð staða barnsins á biðlistum í leikskólum í viðkomandi hverfi. Niðurstaðan er byggð á fæðingardegi barns, umsóknum sem þegar hafa borist, fjölda barna sem hætta til að byrja í grunnskóla og fleiri breytum. Hægt er að skoða staðsetningar á korti og bera þannig saman til dæmis leikskóla nálægt heimili fólks eða vinnu. Leikskólareiknirinn er byggður á lifandi gögnum og eru tölurnar uppfærðar einu sinni á dag. Niðurstöður úr reikningnum eru ekki umsókn og geta ekki gefið loforð um pláss. Hann sýnir hvar í röðinni þitt barn myndi lenda í þeim leikskólum sem þið hafið hug á miðað við stöðuna þann dag sem svo getur breyst eftir því sem umsóknum fjölgar eða fækkar.

Leikskólareiknirinn nær yfir borgarrekna leikskóla

Best væri að sem flestir sem ætla að nýta Leikskólareikninn við val á leikskóla geri það fyrr en seinna. Enn sem komið er nær leikskólareiknirinn aðeins yfir borgarrekna leikskóla.

Eins og áður velja foreldrar þann skóla sem þeir vilja helst nr. 1 og aðra skóla þar á eftir. Breyting verður á að nú er hægt að velja um sjö skóla í stað fimm áður. Eftir að umsókn hefur verið skilað inn er hægt að fylgjast með hvar í röðinni á biðlista barn er í þeim skólum þar sem sótt var um pláss á Vala leikskóli. Þegar umsókn er fyllt út í fyrsta sinn þarf að skrá minnst tvo leikskóla og mest hægt að skrá sjö leikskóla. Mikilvægt er að foreldrar skoði vel umsókn síns barns til að tryggja að val sé rétt skráð.

Fréttir af framkvæmdum

Í ár er von á nokkrum fjölda leikskólaplássa til baka eftir framkvæmdir í nokkrum leikskólum. Viðhaldsátak og endurbætur á leikskólahúsnæði heldur þó áfram sem getur haft einhver áhrif á innritun í nokkra leikskóla.

Upplýsingar um leikskóla þar sem framkvæmdum er að ljúka eða framkvæmdir að hefjast:

  • Funaborg – Áætlað er að framkvæmdir hefjist í ár og þá flytur leikskólinn í Húsaskóla.
  • Grandaborg – Áætlað er að opna leikskólann aftur í ár eftir viðamiklar framkvæmdir, boðið verður í hluta plássa á þessu ári.
  • Brákarborg – Áætlað að leikskólinn flytji aftur á Kleppsveg eftir sumarfrí.
  • Jörfi – Áætlað er að nýtt húsnæði leikskólans sem áður hýsti leikskólann Garðaborg opni undir merkjum Jörfa í vor.
  • Klettaborg – Stækkun leikskólans er langt komin með nýju húsnæði í Hlaðhömrum og plássum fjölgar því frá og með hausti.
  • Klambrar – Unnið er að því að bæta við fleiri deildum við leikskólann og ætti þeim framkvæmdum að ljúka í sumar.
  • Hálsaskógur – Áætlað er að endurbótum á öðru húsnæði leikskólans (Borg) ljúki í haust og starfsemi geti hafist síðar á árinu.
  • Laugasól - Sá hluti leikskólans sem hefur verið starfræktur í Safamýri mun flytjast í Ármúla í haust.