Opinn kynningarfundur um Sundabraut í Grafarvogi

Fundurinn í Egilshöll var þriðji í röð opinna funda þar sem almenningi gefst kostur á að fá kynningu á framkvæmdinni, spyrja spurninga og setja fram athugasemdir. Markmiðið er að gefa fólki tækifæri til að kynna sér framkvæmdina milliliðalaust. Myndir/Anton Brink
Fólk í bíósal

Vel var mætt á opinn kynningarfund í Grafarvogi miðvikudagskvöldið 21. október en valkostir um legu Sundabrautar eru nú til kynningar. Tilefni fundarins var að umhverfismatsskýrsla vegna Sundabrautar og drög að aðalskipulagsbreytingu eru komin í Skipulagsgáttina.

Góð þátttaka var í umræðum sem fram fóru eftir kynningar í sal 1 í Sambíóunum í Egilshöll en áætlað er að um 230 manns hafi mætt á fundinn. Guðmundur Valur Guðmundsson, fulltrúi Vegagerðarinnar og formaður verkefnisstjórnar um undirbúning Sundabrautar, kynnti verkefnið og efni umhverfismatsskýrslunnar á fundinum. Andri Gunnarsson og Ragnhildur Gunnarsdóttir, frá verkfræðistofunni EFLU, sem er ráðgjafi við gerð umhverfismatsskýrslunnar, fjölluðu um vegtengingar og afmarkaða þætti umhverfismatsins og Haraldur Sigurðsson deildarstjóri aðalskipulags hjá umhverfis- og skipulagssviði Reykjavíkurborgar, fór yfir samspil framkvæmdarinnar og aðalskipulags borgarinnar.  Fundarstjóri var G. Pétur Matthíasson.

Að spurningum loknum gafst fólki tækifæri til að rýna gögnin í samtali við sérfræðinga á nokkrum þematengdum stöðvum og kynna sér málið nánar. 

Spurt um umferðarflæði og útivist

Í fyrirliggjandi umhverfismatsskýrslu leggur Vegagerðin fram tvo aðalvalkosti fyrir þverun Kleppsvíkur milli Sæbrautar við Sundahöfn og Gufuness, annars vegar jarðgöng og hins vegar 30 metra háa brú. Báðir valkostir fylgja sömu veglínu frá Gufunesi um Geldinganes, Gunnunes, Álfsnes og upp á Kjalarnes. Eiðsvík, Leiruvogur og Kollafjörður verða þveruð með landfyllingum og brúm. Þá var einnig farið yfir hvernig framkvæmdin myndi bæta flæði umferðar á höfuðborgarsvæðinu og samspil við fyrirhugaðar breytingar á aðalskipulagi Reykjavíkur.

Á meðal þess sem var rætt var á fundinum voru áhyggjur íbúa af umferðarnið og mögulegar mótvægisaðgerðir. Spurt var um framkvæmdatíma Sundabrautar og hvort hún yrði byggð upp í áföngum eða ekki. Íbúar voru einnig að velta fyrir sér framtíðaráformum með Hallsveg, umferðarlíkönum og uppbyggingu. Áhrif Sundabrautar á náttúru og útivist komu nokkuð við sögu, loftgæði á framkvæmdatíma og líftími brúa og ganga. Einnig voru fleiri spurningar er vörðuðu umferðarflæði, til dæmis hvort brú eða göng hafi meiri áhrif á umferð í Ártúnsbrekku. Hægt er að horfa á upptöku af fundinum hér, þar með talið spurt og svarað hluta fundarins:

Megin sjónarmið Reykjavíkur um framkvæmdina

  • Bæti samgöngur fyrir alla ferðamáta; fyrir akandi, almenningssamgöngur, gangandi og hjólandi.
  • Að neikvæð áhrif á nálæga íbúðarbyggð og tengsl milli hverfa verði lágmörkuð.
  • Hafi sem minnst áhrif á hafnarstarfsemi og leiði til hagfelldrar þróunar hafnarsvæðanna til lengri framtíðar.
  • Að mannvirki falli vel að landslagi, náttúru og byggð og staðið verði að metnaði við hönnun þeirra útfrá fagurfræðilegum sjónarmiðum.
  • Gatnamannvirki, brúarlausnir og landfyllingar verði með þeim hætti að áhrif á lífríki verði lágmörkuð.
  • Að leitað verði leiða til að lágmarka umfang og landþörf  stofnbrautar og gatnamannvirkin rýri sem allra minnst verðmæt útivistar- og náttúrusvæði, svo og framtíðar uppbyggingarsvæði.

Opið fyrir umsagnir til 30. nóvember

Fundurinn í Egilshöll var þriðji í röð opinna funda þar sem almenningi gefst kostur á að fá kynningu á framkvæmdinni, spyrja spurninga og setja fram athugasemdir. Markmiðið er að gefa fólki tækifæri til að kynna sér framkvæmdina milliliðalaust, fá ítarlegri upplýsingar og spyrja sérfræðinga um þau atriði sem helst brenna á því.

Alls voru þrír kynningarfundir vegna Sundabrautar haldnir í Reykjavík, þar sem fjallað var um niðurstöður umhverfismats Sundabrautar og drög að aðalskipulagsbreytingu. Einnig heldur Vegagerðin fundi í Mosfellsbæ og Akranesi.

Umhverfismatsskýrslan og drög að aðalskipulagsbreytingu eru aðgengileg í Skipulagsgáttinni. Hægt er að senda inn umsagnir eða athugasemdir við hana til 30. nóvember næstkomandi.

Áréttað er að hér er um drög að að ræða sem fara nú í forkynningu áður en lögformleg aðalskipulagsbreyting verður endanlega mótuð og auglýst. Ákvörðun um endanlega útfærslu Sundabrautar í aðalskipulagi mun meðal annars byggja á niðurstöðum umhverfismatsins, sjónarmiðum sem koma fram í kynningarferlinu framundan og nánara samkomulagi milli borgar og ríkis.