
Icelandic Food Company ehf., að höfðu samráði við Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur, hefur stöðvað sölu og innkallað frá neytendum tómat- og basilsúpu frá Happ.
Aðskotahlutur (glerbrot) fannst í einni krukku.
Hver er hættan?
Glerbrot í matvælum geta valdið neytendum skaða.
Upplýsingar um vöru sem innköllunin einskorðast við:
Vörumerki: HaPP
Vöruheiti: Tómat- og basilsúpa
Geymsluþol: Best fyrir 06.06.25
Nettómagn: 700 ml
Framleiðandi: Icelandic Food Company, Vatnagörðum 6, 104 Reykjavík
Framleiðsluland: Ísland
Heiti og heimilisfang fyrirtækis sem innkallar vöru
Icelandic Food Company, Vatnagörðum 6, 104 Reykjavík.
Dreifing
Verslanir Krónunnar um land allt.
Leiðbeiningar til neytenda
Neytendur sem keypt hafa umrædda vöru eru beðnir um að neyta hennar ekki og farga en einnig geta þeir skilað henni í versluninni þar sem hún var keypt gegn fullri endurgreiðslu.
Nánari upplýsingar um innköllun
Senda má tölvupóst á netfangið icelandfood[hja]icelandfood.is.
