Innköllun á söxuðum döðlum frá Til hamingju

Heilbrigðiseftirlit

Saxaðar döðlir frá Til hamingju

Nathan & Olsen, að höfðu samráði við Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur, hefur stöðvað sölu og innkallað frá neytendum Döðlur saxaðar frá Til hamingju.

Ástæða innköllunar

Kvartanir hafa borist um vonda lykt/bragð af döðlunum.

Hver er hættan?

Mögulega eru matvælin skemmd og því óhæf til neyslu.

Upplýsingar um vöru sem innköllunin einskorðast við

Vörumerki: Til hamingju                         

Vöruheiti: Döðlur saxaðar

Geymsluþol: Best fyrir lok: 06.2025, 08.2025, 10.2025

Strikamerki: 5690595095496

Nettómagn: 250 g

Framleitt fyrir: Nathan & Olsen, Klettagörðum 19, 104 Reykjavík

Framleiðsluland: Bretland

Heiti og heimilisfang fyrirtækis sem innkallar vöru

Nathan & Olsen, Klettagörðum 19, 104 Reykjavík.

Dreifing

Aðföng (Hagkaup), Verslunin Einar Ólafsson, Fjarðarkaup, Heimkaup, Hlíðarkaup, Hraðkaup Hellisandi, Kaupfélag Skagfirðinga, Kauptún, Krónan, Bláfell, Melabúðin, Smáalind, Verslunin Álfheimar, Verslunin Kassinn.

Leiðbeiningar til neytenda

Neytendur sem keypt hafa umrædda vöru eru beðnir um að neyta hennar ekki og farga en einnig geta þeir skilað henni til Nathan & Olsen.