Innköllun á Chili jarðhnetum frá Til hamingju

Heilbrigðiseftirlit

Chili jarðhnetur mynd

Nathan & Olsen, að höfðu samráði við Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur, hefur stöðvað sölu og innkallað frá neytendum Chili jarðhnetur frá Til hamingju.

Ástæða innköllunar

Varan inniheldur ofnæmis- eða óþolsvald (soja) sem ekki er tilgreindur á umbúðum.

Hver er hættan?

Neysla vörunnar getur verið varasöm fyrir einstaklinga sem eru með ofnæmi eða óþol fyrir soja og afurðum úr því.

Upplýsingar um vöru sem innköllunin einskorðast við

Vörumerki: Til hamingju                         

Vöruheiti: Chili jarðhnetur

Geymsluþol: Best fyrir: 28.02.25, 22.07.25 og 25.09.25

Strikamerki: 569059092495

Nettómagn: 150 g

Framleiðandi: Nathan & Olsen, Klettagörðum 19, 104 Reykjavík

Framleiðsluland: Ísland

Heiti og heimilisfang fyrirtækis sem innkallar vöru

Nathan & Olsen, Klettagörðum 19, 104 Reykjavík.

Dreifing

Hagkaup, Verslunin Blómsturvellir, Verslunin Einar Ólafsson, Pétursbúð, Fjarðarbúðin, Fjarðarkaup, Fríhöfnin, Heimkaup, Hjá Jóhönnu, Hlíðarkaup, Jónsabúð, K.f. V-Húnvetninga, Lyfjabúrið, Melabúðin, Skerjakolla, Skálinn Þorlákshöfn, Smáalind, Verslunin Álfheimar, Verslunin Árborg, Verslunin Ásbyrgi og Verslunin Kassinn.  

Leiðbeiningar til neytenda

Neytendur sem keypt hafa umrædda vöru og eru með ofnæmi eða óþol fyrir soja og afurðum úr því eru beðnir um að neyta hennar ekki og farga en einnig geta þeir skilað henni til Nathan & Olsen.