Innkalla pastaskeið úr plasti

Plastskeiðin sem er innkölluð

Ásbjörn Ólafsson ehf., að höfðu samráði við Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur, hefur stöðvað sölu og innkallað frá neytendum pastaskeið úr plasti vegna flæðis efna úr plastinu. 

Ástæða innköllunar 

Við prófanir kom í ljós að flæði svokallaðra PAA (Primary Aromatic Amines) úr plastinu fer yfir mörk sem sett eru í reglugerð Evrópusambandsins nr. 10/2011 um efnivið og hluti úr plasti sem ætlað er að komast í snertingu við matvæli.  Varan telst því óörugg til notkunar. 

Upplýsingar um vöru sem innköllunin einskorðast við 

Vörumerki:  GastroMax by Orthex 

Vöruheiti:  Pasta ladle 

Vörunúmer:  Art. no. 6918-1 

Strikamerki: 7332462071810 

 
Vandamálið tengist framleiðslulotu sem framleidd var í desember 2024. Hægt er að bera kennsl á þessa lotu með klukkutáknum sem eru staðsett á bakhlið handfangsins:  

  • Neðri klukkan sýnir framleiðslumánuð og á að vísa á „12“ (desember).  
  • Efri klukkan sýnir árið og á að vísa á „24“ (2024). 

Heiti og heimilisfang fyrirtækis sem innkallar vöru 

Ásbjörn Ólafsson ehf., Suðurlandsbraut 26, 108 Reykjavík 

Dreifing 

Hagkaup; Fjarðarkaup; Kaupfélag Skagfirðinga; Skipavík, Kauptún; Bjarnabúð; Verslunin Kassinn. 

Leiðbeiningar til neytenda 

Neytendur sem hafa keypt umrædda vöru eru beðnir um að hætta notkun hennar og skila henni til söluaðila.