Innköllun á fæðubótaefnum frá Gula miðanum
Heilsa ehf., að höfðu samráði við Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur, hefur stöðvað sölu og innkallað frá neytendum fæðubótarefnin Guli miðinn Husk og Guli miðinn Colon Cleanser.
Ástæða innköllunar er að hráefni sem notað var við framleiðslu á vörunum inniheldur aðskotaefnið pyrrolizidine alkalóíða yfir mörkum.
Upplýsingar um vöru sem innköllunin einskorðast við
Vörumerki: Guli miðinn
Vöruheiti: Husk
Lotunúmer og best fyrir dagsetningar: Lota 25/16/11, best fyrir 12.06.2028; lota 25/24/11, best fyrir 09.07.2028; lota 25/35/15, best fyrir 16.9.2028; lota 25/50/17, best fyrir 23.4.2029.
Strikamerki: 5690684004446
Framleiðandi: Lifeplan
Framleiðsluland: Bretland
Vörumerki: Guli miðinn
Vöruheiti: Colon Cleanser
Lotunúmer og best fyrir dagsetningar: Lota 25/5/59, best fyrir 23.04.2028; lota 061225, best fyrir 10.09.2028.
Strikamerki: 5690684000868
Framleiðandi: Lifeplan
Framleiðsluland: Bretland
Heiti og heimilisfang fyrirtækis sem innkallar vöru
Heilsa ehf., Skarfagarðar 2, 104 Reykjavík.
Dreifing (verslanir): Austurbæjarapótek, Apótek Garðabæjar, Borgar Apótek, Bæjarapótek, Lyfja, Krónan, Hagkaup, Lyfjaver, Heilsuver, Apótekarinn, Lyfsalinn, Fjarðarkaup, Hlíðarkaup, Kaupfélag Vestur – Húnvetninga, Siglufjarðarapótek, Þín verslun Kassinn, Urðarapótek.
Leiðbeiningar til neytenda
Neytendur sem hafa keypt umræddar vörur eru beðnir um að hætta notkun þeirra og farga en einnig má skila þeim í versluninni þar sem þær voru keyptar eða hjá Heilsu ehf.
Nánari upplýsingar um innköllunina veitir Heilsa ehf. í síma 533 3232 eða í gegnum netfangið heilsa[hja]heilsa.is.