Innköllun á River Rice hrísgrjónum
Danól, að höfðu samráði við Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur, hefur stöðvað sölu og innkallað frá neytendum River Rice hrísgrjón sem eingöngu var dreift til verslana Samkaupa.
Danól, að höfðu samráði við Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur, hefur stöðvað sölu og innkallað frá neytendum River Rice hrísgrjón sem eingöngu var dreift til verslana Samkaupa.
Ástæða innköllunar er að varan getur innihaldið aðskotahluti (skordýr).
Upplýsingar um vöru sem innköllunin einskorðast við
Vörumerki: River
Vöruheiti: White Rice
Best fyrir dagsetning: 02.06.2028
Nettómagn: 1 kg
Framleiðsluland: Belgía
Heiti og heimilisfang fyrirtækis sem innkallar vöru
Danól, Fosshálsi 25, 110 Reykjavík.
Dreifing (verslanir)
Verslanir Samkaupa.
Leiðbeiningar til neytenda
Neytendur sem hafa keypt umrædda vöru eru beðnir um að hætta notkun hennar og farga en einnig má skila henni með því að senda mynd af pakkningunni með viðeigandi dagsetningu ásamt upplýsingum um kaupanda á netfangið danol[hja]danol.is.
Nánari upplýsingar um innköllunina veitir Danól í síma 595 8000 eða í gegnum netfangið danol[hja]danol.is.