Hækkun á styrk svifryks og köfnunarefnisdíoxíðs
Styrkur svifryks (PM10) hefur mælst hár í mælistöð við Grensásveg í borginni í kjölfar morgunumferðar í dag, 2. desember.
Vindhraði var aðeins um 1 m/s skv. athugun á vef Veðurstofunnar kl. 11 og er gert ráð fyrir hægum vindi í allan dag. Klukkan 10:00 var klukkustundargildi svifryks við Grensásveg 186,3 míkrógrömm á rúmmetra og 80,3 míkrógrömm á rúmmetra kl. 12. Svifryksgildi hafa einnig verið há í mælistöð í Dalsmára í Kópavogi og var hæsta tíu mínútna gildið 153,9 míkrógrömm á rúmmetra í klukkan 11:40. Styrkur köfnunarefnisdíoxíðs hefur einnig verið hækkaður í sömu mælistöðvum.
Þar sem aðeins er hægur vindur, götur þurrar og ekki líkur á úrkomu í dag er líklegt að styrkur svifryks verði einnig hár í tengslum við eftirmiðdagsumferðina. Gert er ráð fyrir svipuðu veðri næstu daga og því líkur á að styrkur svifryks verði áfram hár og þjóðvegir í þéttbýli og helstu stofngötur verða því rykbundnar í nótt til að draga úr uppþyrlun. Rykbinding er samvinnuverkefni Reykjavíkurborgar og Vegagerðarinnar.
Þeir sem eru viðkvæmir fyrir í öndunarfærum, aldraðir og börn ættu að forðast útivist í lengri tíma og takmarka áreynslu í nágrenni stórra umferðagatna. Í dag og næstu daga er almenningur hvattur til þess að draga úr notkun einkabílsins ef unnt er, geyma ferðir sem ekki eru aðkallandi, nýta sér frekar almenningssamgöngur, sameinast í bíla eða nota aðra vistvæna samgöngumáta. Skorað er á fyrirtæki að hvetja starfsfólk til að vinna fjarvinnu sé þess kostur og draga úr akstri ef hægt er.
Loftgæðavefur Umhverfisstofnunar
Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur fylgist náið með loftgæðum borgarinnar og sendir frá sér viðvaranir og leiðbeiningar ef ástæða þykir til. Hægt er að fylgjast með styrk svifryks og annarra mengandi efna á loftgæði.is. Þar má sjá kort yfir mælistaði í Reykjavík og annars staðar á landinu.
Loftgæðavefur Umhverfisstofnunar metur loftgæði með eftirfarandi litakóða:
Mjög góð = Lítil sem engin loftmengun. Líklega engin heilsufarsleg áhrif.
Góð = Lítilsháttar loftmengun. Lítil sem engin heilsufarsleg áhrif.
Sæmileg = Nokkur loftmengun. Mjög viðkvæmir einstaklingar og einstaklingar með astma eða aðra undirliggjandi lungna- og/eða hjartasjúkdóma geta fundið fyrir einkennum vegna aukins styrks loftmengunarefna í andrúmslofti.
Svifryk
Svifryk er fínasta gerð rykagna sem eiga greiða leið í öndunarfærin en heilsuverndarmörk miðast við 50 míkrógrömm á rúmmetra á sólarhring fyrir PM 10 (svifagnir um 10 míkrógrömm að stærð). Helsti uppruni svifryks er uppspænt malbik, sót aðallega frá díselbruna, jarðvegsagnir, salt, aska og fleira.