Borgarbúar hafa tekið grænni tunnu undir plast sem góðum kosti og hafa þegar pantað 1.700 tunnur.
Þjónusta sorphirðunnar er bæði hagkvæmari og betri en áður eftir þær breytingar sem urðu við áramót í úrgangsmálum í Reykjavík. „Við höfum breytt fyrirkomulaginu til að styðja íbúa í vistvænum lífsstíl, segir Eygerður Margrétardóttir deildarstjóri í umhverfis- og úrgangsmálum hjá Reykjavíkurborg.
„Það er ekkert bruðl í úrgangsmálum í Reykjavík,“ segir Eygerður. Hún segir að borgarbúar hafi nú þegar pantað 1.700 grænar tunnur í Reykjavík en áætlanir gera ráð fyrir pöntunum upp á 4.000 tunnur á þessu ári. „Íbúar sjá þetta því greinilega sem ákjósanlegan kost;“ segir hún.
Þjónustuver Reykjavíkurborgar staðfestir jákvæð viðbrögð borgarbúa og fulltrúar þar segja að íbúar séu almennt ánægðir með breytingarnar sem eru að verða á sorphirðunni. „Það gefur besta raun að íbúar flokki og séu meðvitaðir um hversu mikið rúmmál þurfi undir úrgang á hverjum stað,“ segir Eygerður.
Betra og ódýrara að flokka
Meginreglan í Reykjavík er að þeir borgi minna sem noti bláa tunnu, græna og spartunnu. Þeir sem flokka lítið borga meira en þeir sem eru duglegir að flokka borga minna. Val Reykvíkinga á þjónustunni mótar þann kostnað sem íbúar greiða. Í öðrum sveitarfélögum borga íbúar eitt fast gjald óháð notkun og þjónustu og geta ekki lækkað gjaldið.
Hagkvæmt í fjölbýlishúsum
Nýja fyrirkomið hefur ýmsa kosti í för með sér og gefur til dæmis þeim sem búa í fjölbýlishúsum tækifæri til að lækka sorphirðugjaldið. Hér er dæmi: 20 íbúða fjölbýli með 17 gráar tunnur greiðir 26.085 krónur á ári á íbúð en með því að flokka getur kostnaðurinn orðið 22.855 kr á ári á íbúð. Það eru þá 20 tunnur í stað 17 eða 10 gráar, 5 bláar og 5 grænar.
Hægt er að kynna sér valkostina á vefnum www.ekkirusl.is. Þá bjóða einkaaðilar upp á endurvinnslutunnur eins og Íslenska gámafélagið og Gámaþjónustan.
Græna tunnan tekur bæði mjúkt plast eins og plastpoka, plastfilmur og bóluplast og hart plast eins og plastbakka, plastílát og brúsar af ýmsu tagi undan hreinsiefnum, matvöru, mjólkurvörum og kjötvörum, frauðplast og minni hlutir úr plasti. Mikilvægt er að hreinsa allar matar- og efnaleifar af plastinu og minnka rúmmál eins og mögulegt er áður en það er sett í tunnuna.
Tengill
Fréttir af sorphirðu og valkostum: