Búið að hirða allt jólaruslið í Reykjavík

Umhverfi

""
Starfsfólk sorphirðunnar hefur þegar lokið við að sækja ruslið eftir jólin hjá borgarbúum og keppist nú við að sækja áramótaruslið.
Reykjavíkurborg er nú með 14 daga hirðutíðni á blönduðum úrgangi eins og flest öll önnur sveitarfélög á landinu. Aukið rými skapast í tunnum undir blandaðan úrgang eftir að borgin bauð íbúum upp á að sækja plast við heimili í græna tunnu. Tíu daga hirða er því ekki lengur hagkvæm.

Sorphirða gengur vel eftir jól og áramót

Starfsfólk sorphirðu Reykjavíkur hefur unnið stíft yfir hátíðarnar og undanfarna daga. Það var við störf sunnudaginn 27. desember og verður einnig að störfum laugardaginn 9. janúar. Það hefur þegar losað gráar tunnur undir blandaðan úrgang eftir jólahátíðina og keppist nú við að tæma tunnurnar eftir áramótin ásamt bláum tunnum undir pappír. Það hefur gengið mjög vel og afar lítið borið á yfirfullum tunnum.


„Við erum núna að losa á sama stað og við vorum að tæma 28. og 29. desember og við erum því á áætlun,“ segir Eygerður Margrétardóttir deildarstjóri umhverfis- og úrgangsmála hjá Reykjavíkurborg. Hafi aukarusl verið til staðar hefur það einnig verið tekið. Vilji borgarbúar koma með ábendingar vegna sorphirðu er gott að senda póst á netfangið sorphirda@reykjavik.is.
 
Tengill