Margvísleg þjónusta í Reykjavík yfir jólin

Umhverfi Stjórnsýsla

""
Í Reykjavík er margvísleg þjónusta í boði bæði á vegum borgarinnar sem og annarra þjónustufyrirtækja. Hér stiklum við á stóru yfir það helsta sem er í boði og tengist borginni. 
Á aðfangadag verða um 25 veitingastaðir opnir samkvæmt upplýsingum sem Höfuðborgarstofa hefur tekið saman. Þeir sem þurfa að leiðbeina erlendum gestum geta einnig nýtt sér vefsíðuna visitreykjavik.is  eða heimsótt Upplýsingamiðstöð ferðamanna í Aðalstræti en þar er opið til 19.00 á Þorláksmessu,  kl. 8 – 14 á aðfangadag, lokað á jóladag, en annan í jólum er opið kl. 10 – 14.
 

Sundlaugar opnar á Þorláksmessu, aðfangadag og annan í jólum

Sundlaugarnar eru opnar yfir jólin, þó skemur sé en aðra daga. Á Þorláksmessu eru þær opnar til kl. 18.00, nema Klébergslaug á Kjalarnesi sem er opin til 15.00.  Á aðfangadag verða laugarnar opnar til kl. 12.30, en á jóladag eru allar laugar lokaðar. Annan í jólum eru tvær laugar opnar,  Árbæjarlaug og Laugardalslaug, sem eru opnar frá hádegi kl. 12.00 – 18.00

Vakað yfir vetrarþjónustu og sandur og salt fyrir íbúa

Starfsmenn Reykjavíkurborgar standa vetrarvaktina og verða starfsmenn ræstir út eftir þörfum. Nánar um þessa þjónustu er að finna á reykjavik.is/snjor.

 
Íbúum stendur einnig til boða að sækja sér salt og sand á eftirtöldum stöðum:  
  • Þjónustumiðstöðinni við Stórhöfða (keyrt inn frá Svarthöfða)
  • Hverfastöðinni við Njarðargötu,     
  • Hverfastöðinni í Jafnaseli,
  • Hverfastöðinni á Kjalarnesi,
  • Verkbækistöðinni við Árbæjarblett og
  • Verkbækistöðinni á Klambratúni við Flókagötu.
Í dag, Þorláksmessu, er hægt að sækja sand til kl. 17.00 á þessum stöðum, en á morgun, aðfangadag er opið í Jafnaseli og á Njarðargata fram að hádegi.  Íbúar eru hvattir til að hafa með sér ílát en einnig er mögulegt að fá poka á staðnum.  Skóflur eru við sand- og salthrúgurnar.

Björgum bókajólunum á Þorláksmessu

Borgarbókasöfnin eru opin í dag,  á Þorláksmessu, til kl. 19.00 og opna svo aftur þriðja í jólum.

Félagsmiðstöðvar velferðarsviðs

Félagsmiðstöðvar velferðarsviðs loka á hádegi á aðfangadag en eldhúsið að Vitatorgi er opið alla daga ársins. 

Jólaþorp, jólamarkaður og skautar í miðborginni

Árlegur Jólamarkaður Reykjavíkurborgar er í Fógetagarðinum og þar er opið til kl. 23.00, eins og víðast hvar hjá verslunarfyrirtækjum í borginni.  

Þá er Jólaþorpið á Ingólfstorgi opið til kl. 23.00 og skautasvellið sem Nova setti upp í samstarfi við Reykjavíkurborg og Samsung verður opið til miðnættis. Skoða upplýsingar um skautasvell

Skíðasvæðin – Bláfjöll og Skálfell með góða upplýsingaþjónustu

Skíðasvæði Reykvíkinga í Bláfjöllum og Skálafelli verða opin þegar veður leyfir og vefsíðan skidasvaedi.is   er uppfærð reglulega. Einnig er hægt að hringja í upplýsingasíma Skíðasvæðanna 530 3000

Síma- og þjónustuver – fyrirspurnir og ábendingar

Síma- og þjónustuver borgarinnar á Höfðatorgi er opið til hádegis á aðfangadag geta starfsmenn þar leiðbeint um nánari upplýsingar í síma 41111 11.  Einnig er hægt að senda fyrirspurn á netfangið upplysingar@reykjavik.is


Þá er hægt að koma ábendingum um þjónustu á borgarlandi til viðkomandi aðila með því að setja færslu á ábendingavefinn – opna ábendingavef