Árlegur jólamarkaður er í Fógetagarði í dag, á morgun og á Þorláksmessu. Þar er eitthvað fyrir alla, sælkera og fagurkera.
Markaðurinn er í stóru upphituðu tjaldi þar sem yfir 20 söluaðilar selja ýmiskonar góðgæti, skartgripi, fatnað og ýmislegt annað sem tilvalið er að lauma í jólapakka eða njóta sjálf/ur.
Heimsleikafarar Slökkviliðs Höfuðborgarsvæðisins verða einnig með til sölu sitt árlega jóladagatal auk þess sem í boði verður að stilla sér upp til myndatöku með slökkviliðsmönnum.
Í miðborginni minnir svo margt á jólin og það er að sjálfsögðu hluti að stemningunni að bregða sér á alvöru jólamarkaði í Fógetagarði.
Markaðurinn verður opinn sem hér segir:
21.-22. desember kl. 14.00-22.00
23. desember kl. 14.00-23.00
21.-22. desember kl. 14.00-22.00
23. desember kl. 14.00-23.00