Í Reykjavík er margvísleg þjónusta í boði bæði á vegum borgarinnar sem og annarra þjónustufyrirtækja. Hér stiklum við á stóru yfir það helsta sem er í boði og tengist borginni.
Á aðfangadag verða um 25 veitingastaðir opnir samkvæmt upplýsingum sem Höfuðborgarstofa hefur tekið saman. Þeir sem þurfa að leiðbeina erlendum gestum geta einnig nýtt sér vefsíðuna visitreykjavik.is eða heimsótt Upplýsingamiðstöð ferðamanna í Aðalstræti en þar er opið til 19.00 á Þorláksmessu, kl. 8 – 14 á aðfangadag, lokað á jóladag, en annan í jólum er opið kl. 10 – 14.
Sundlaugar opnar á Þorláksmessu, aðfangadag og annan í jólum
Sundlaugarnar eru opnar yfir jólin, þó skemur sé en aðra daga. Á Þorláksmessu eru þær opnar til kl. 18.00, nema Klébergslaug á Kjalarnesi sem er opin til 15.00. Á aðfangadag verða laugarnar opnar til kl. 12.30, en á jóladag eru allar laugar lokaðar. Annan í jólum eru tvær laugar opnar, Árbæjarlaug og Laugardalslaug, sem eru opnar frá hádegi kl. 12.00 – 18.00
Vakað yfir vetrarþjónustu og sandur og salt fyrir íbúa
Starfsmenn Reykjavíkurborgar standa vetrarvaktina og verða starfsmenn ræstir út eftir þörfum. Nánar um þessa þjónustu er að finna á reykjavik.is/snjor.
Íbúum stendur einnig til boða að sækja sér salt og sand á eftirtöldum stöðum:
- Þjónustumiðstöðinni við Stórhöfða (keyrt inn frá Svarthöfða)
- Hverfastöðinni við Njarðargötu,
- Hverfastöðinni í Jafnaseli,
- Hverfastöðinni á Kjalarnesi,
- Verkbækistöðinni við Árbæjarblett og
- Verkbækistöðinni á Klambratúni við Flókagötu.
Í dag, Þorláksmessu, er hægt að sækja sand til kl. 17.00 á þessum stöðum, en á morgun, aðfangadag er opið í Jafnaseli og á Njarðargata fram að hádegi. Íbúar eru hvattir til að hafa með sér ílát en einnig er mögulegt að fá poka á staðnum. Skóflur eru við sand- og salthrúgurnar.
Björgum bókajólunum á Þorláksmessu
Borgarbókasöfnin eru opin í dag, á Þorláksmessu, til kl. 19.00 og opna svo aftur þriðja í jólum.
Félagsmiðstöðvar velferðarsviðs
Félagsmiðstöðvar velferðarsviðs loka á hádegi á aðfangadag en eldhúsið að Vitatorgi er opið alla daga ársins.
Jólaþorp, jólamarkaður og skautar í miðborginni
Árlegur Jólamarkaður Reykjavíkurborgar er í Fógetagarðinum og þar er opið til kl. 23.00, eins og víðast hvar hjá verslunarfyrirtækjum í borginni.
Þá er Jólaþorpið á Ingólfstorgi opið til kl. 23.00 og skautasvellið sem Nova setti upp í samstarfi við Reykjavíkurborg og Samsung verður opið til miðnættis. Skoða upplýsingar um skautasvell.
Skíðasvæðin – Bláfjöll og Skálfell með góða upplýsingaþjónustu
Skíðasvæði Reykvíkinga í Bláfjöllum og Skálafelli verða opin þegar veður leyfir og vefsíðan skidasvaedi.is er uppfærð reglulega. Einnig er hægt að hringja í upplýsingasíma Skíðasvæðanna 530 3000
Síma- og þjónustuver – fyrirspurnir og ábendingar
Síma- og þjónustuver borgarinnar á Höfðatorgi er opið til hádegis á aðfangadag geta starfsmenn þar leiðbeint um nánari upplýsingar í síma 41111 11. Einnig er hægt að senda fyrirspurn á netfangið upplysingar@reykjavik.is
Þá er hægt að koma ábendingum um þjónustu á borgarlandi til viðkomandi aðila með því að setja færslu á ábendingavefinn – opna ábendingavef