No translated content text
Suðurhlíðar Bústaðavegur - Fossvogur, göngu- og hjólastígur
Verkið felur í stórum dráttum í sér gerð göngu- og hjólastígs meðfram Kringlumýrarbraut við Suðurhlíð, frá rampa norðan Bústaðavegar að rampa frá Kringlumýrarbraut að Suðurhlíð.
Jan 2024 - Sept 2024
Myndir
Hvað verður gert?
Verkið felur í sér gerð göngu- og hjólastígs meðfram Kringlumýrarbraut, frá þverun stígs yfir afrein/rampa sem tengir Kringlumýrarbraut við Bústaðaveg að norðanverðu að fyrirhugaðri nýrri þverun stíga yfir rampa frá Kringlumýrarbraut að Suðurhlíð, gerð grjóthleðslu við hlið stíga. Einnig gerð hljóðgirðingar úr tré í samræmi við teikningar og fráveitulagnir.
Hvernig gengur?
Sept 2024
Verki er lokið og búið er að opna stíg fyrir umferð. Eftir er að framkvæma smávægilegar lagfæringar á aðliggjandi svæðum.
Hver koma að verkinu?
Síðast uppfært 27.09.2024