Ölduselsskóli - viðhaldsframkvæmdir
Myndir
Hvað verður gert?
Unnið er að viðgerðum sem snúast um að fjarlægja rakaskemmt byggingarefni í nokkrum rýmum Ölduselsskóla, koma í veg fyrir rakasöfnun og byggja upp að nýju. Jafnframt verða grunn- og jarðvatnslagnir endurnýjaðar.
Unnið er í áföngum eftir því sem aðstæður bjóða upp á en svo skapa megi framkvæmdum svigrúm verða settar upp færanlegar kennslustofur á lóð skólans. Færanlegu kennslustofurnar verða alls 1200m2 og rúma um 230 nemendur skólans.
Hvernig gengur?
Apríl 2026
Vinnu við uppsetningu á færanlegum kennslustofum miðar vel áfram. Ráðgert er að hefja kennslu í stofunum síðar í mánuðinum.
Áætlað er að hefja gluggaskipti í myndmenntastofu, snillismiðju og námsveri í sumar. Þangað til verður gólfefni fjarlægt, loft og gólf slípuð og gerðar ídælingar í útveggi. Í stofum fyrstu bekkja er unnið á niðurrifi alls innra byrðis og í kjölfar verða gólf og loft slípuð. Áfram er unnið að endurbyggingu á þaki.
Við framkvæmdir er lög rík áhersla á heilsu starfsfólks og nemenda. Til að tryggja gott vinnuumhverfi í skólanum hafa öll vinnusvæði verið stúkuð vandlega af og undirþrýstingur settur á vinnusvæði. Lofthreinsitækjum hefur verið komið fyrir og þrifið er ítarlega með reglulegum hætti.
Mars 2026
Unnið í námsveri, snillismiðju og í myndmenntastofu við múrverk og gluggaþéttingar. Framkvæmdir við salerni á 3. hæð langt komnar. Einnig unnið í kjallara, heimilsfræðistofu og víðar.
Janúar 2026
Frá því að framkvæmdir hófust hefur áhersla verið lögð á að koma húsakynnum frístundar í lag svo starfsemi gæti hafist þar að nýju. Þann 2. janúar 2026 lauk framkvæmdum þar og húsið var afhent frístundahlutanum við mikla ánægju starfsmanna og er starfsemi hafin þar.
Vinna heldur áfram í kaffiaðstöðu starfsfólks og er reiknað með að henni ljúki á næstu vikum. Hönnun til að auka loftgæði í kaffistofunni stendur yfir auk þess sem framkvæmdir á öðrum hlutum hennar standa yfir.
Endurnýjun á stofum 18 og 19, sem eru nærri kaffistofunni og frístundinni, er langt komin.
Ráðist verður í frekari framkvæmdir og heildarendurnýjun skólans í framhaldinu.
Nóvember 2025
Lagt til og samþykkt í borgarráði að ganga frá leigusamningi við Terra um færanlegar kennslustofur á lóð skólans.
Október 2025
Í kjölfar skoðunar á hluta skólabyggingar var þeim hluta skólans lokað í sumar eftir að úttekt leiddi í ljós rakaskemmdir .
Í kjölfarið var gerð heildarúttekt á ástandi skólans og leiddi sú úttekt í ljós að þörf er á töluverðrum úrbótum á flestum hlutum skólabyggingarinnar.
September 2025
Framkvæmdir hófust fyrri part sumars. Nú er unnið að niðurrifi á ákveðnum svæðum og byggingarhlutum innanhúss.
Framundan er gröftur að utanvörðu svo hægt sé að endurnýja jarðvatnslagnir.