Ölduselsskóli - viðhaldsframkvæmdir

Upplýsingasíða vegna framkvæmda og mótvægisaðgerða í Ölduselsskóla.
2025 -
Undirbúningur
Undirbúningur
Í framkvæmd
Í framkvæmd
Lokið
Lokið

Myndir

Hvað verður gert?

Unnið er að viðgerðum sem snúast um að fjarlægja rakaskemmt byggingarefni í nokkrum rýmum Ölduselsskóla, koma í veg fyrir rakasöfnun og byggja upp að nýju. Jafnframt verða grunn- og jarðvatnslagnir endurnýjaðar. 

Unnið er í áföngum eftir því sem aðstæður bjóða upp á en svo skapa megi framkvæmdum svigrúm verða settar upp færanlegar kennslustofur á lóð skólans. Færanlegu kennslustofurnar verða alls 1200m2 og rúma um 230 nemendur skólans. 

Hvernig gengur?

Ágúst 2026

Verið er að leggja lokahönd á viðhaldsframkvæmdir í Snillismiðju, námsveri, textílmennt, stofum 1. bekkjar, íþróttasal, kaffistofu, bókasafni og á göngum. 

ölduselsskóli
Rými hreinsað að innan og undirþrýstingur myndaður

Rýmin hafa verið hreinsuð að innan og endurbyggð að nýju með flotun, málningarvinnu, rafmagns- og ljósavinnu, uppsetningu kerfislofta og öðru tilheyrandi. Auk þess hefur loftræsisamstæðum verið komið fyrir í völdum rýmum sem bæta mun loftgæði til muna.

ölduselsskóli
Enduruppbyging hafin ásamt hljóðvistarúrbótum

 

öldusel
Stakstæðum loftræsisamstæðum komið fyrir

Apríl 2026

Vinnu við uppsetningu á færanlegum kennslustofum miðar vel áfram. Ráðgert er að hefja kennslu í stofunum síðar í mánuðinum. 

Áætlað er að hefja gluggaskipti í myndmenntastofu, snillismiðju og námsveri í sumar. Þangað til verður gólfefni fjarlægt, loft og gólf slípuð og gerðar ídælingar í útveggi. Í stofum fyrstu bekkja er unnið á niðurrifi alls innra byrðis og í kjölfar verða gólf og loft slípuð. Áfram er unnið að endurbyggingu á þaki.

Við framkvæmdir er lög rík áhersla á heilsu starfsfólks og nemenda. Til að tryggja gott vinnuumhverfi í skólanum hafa öll vinnusvæði verið stúkuð vandlega af og undirþrýstingur settur á vinnusvæði. Lofthreinsitækjum hefur verið komið fyrir og þrifið er ítarlega með reglulegum hætti.

Unnið að frágangi og flutt inn fljótlega
Unnið er að frágangi á færanlegum kennslustofum og flutt inn fljótlega
Framkvæmdir í gangi í stofu fyrsta bekkjar.
Unnið að niðurrifi í stofum fyrsta bekkjar

Mars 2026

Unnið í námsveri, snillismiðju og í myndmenntastofu við múrverk og gluggaþéttingar. Framkvæmdir við salerni á 3. hæð langt komnar. Einnig unnið í kjallara, heimilsfræðistofu og víðar. 

Hver koma að verkinu?

Skrifstofa framkvæmda og fasteignaþjónustu Reykjavíkurborgar

Verkkaupi

Norconsult

Eftirlit framkvæmda

Verkvist

Ráðgjöf og úttektir

Ari Oddsson ehf

Verktaki
Last updated 12.08.2026