Laugardalslaug - framkvæmdir við stúku

Unnið að niðurrifi stúkumannvirkis Laugardalslaugar og nýrri uppbyggingu þaks.
2026 -
Undirbúningur
Undirbúningur
Í framkvæmd
Í framkvæmd
Lokið
Lokið

Myndir

Hvað verður gert?

Unnið er að niðurrifi á stúkumannvirki Laugardalslaugar. Samhliða er unnið að uppbyggingu á nýju þaki yfir rýmum undir stúkunni.

Ástand stúkumannvirkisins hefur verið rýnt af sérfræðingum á sviði steinsteypu, viðhalds, burðarvirkja og öryggismála. Stúkan samanstendur að mestu af köldum steypuflötum sem veldur því að rýrnunarferli er hraðara en almennt á við um upphitaða steypufleti. Skýrist það af margföldum frostþíðuáhrifum sem gerir það einnig að verkum að járnbending verður viðkvæmari fyrir tæringu. Rýnt hefur verið hvort hægt sé að endurgera stúkuna með viðbættum súlum eða veggjum og er það mat sérfræðinga að það sé ekki gerlegt.

Hvernig gengur?

Ágúst 2026

Unnið að hönnun á niðurrifi stúkunnar og útfærslu á nýju þaki yfir rýmum undir stúkunni. 

laugardalslaug
Ástand steypu á áhorfendapöllum
laugardalslaug
Séð inn í tæknirými undir lauginni
laugardalslaug
Pottunum fimm undir stúkunni hefur verið lokað

Júní 2026

Unnið nýtt áhættumat á stúkunni af Verkís. Niðurstaða áhættumatsins er afdráttarlaus og kallar á tafarlausa lokun skilgreindra svæða. Fimm heitum pottum undir stúkumannvirkinu lokað og gufubaði og sérklefum undir stúkunni einnig. 

Júní 2024

Fyrirhugað að hefja hönnunarsamkeppni á Laugardalslaug og tengdum mannvirkjum, þar á meðal stúkumannvirki. Bréf þess efnis lagt fram í Borgarráði ásamt úttektarskýrslu.

Hver koma að verkinu?

Skrifstofa framkvæmda og fasteignaþjónustu Reykjavíkurborgar

Verkkaupi

Verkís

Ráðgjöf og hönnun.

Tendra arkitektúr og ráðgjöf

Ráðgjöf og hönnun.
Síðast uppfært 07.09.2026