Frá mínum sjónarhól

Verkefni um kynjajafnrétti og tengingu við sjálfbærni út frá Heimsmarkmiðunum. Verkefnið tekur tvær kennslustundir auk heimanáms á milli kennslustunda.

Um verkefnið

Jafnrétti - Mannréttindi - Staðalímyndir - Kynjamyndir

Tenging við menntastefnu: Félagsfærni, Sjálfsefling

Gerð efnis: Verkefni

Markhópur: 9-16 ára nemendur og starfsfólk

Viðfangsefni: Jafnrétti, Lýðræði, Mannréttindi, staðalmyndir, kynjamyndir

Markmið verkefnis er að fá nemendur til að skoða nærumhverfi sitt og stöðu jafnréttis í samfélaginu. Einnig að átta sig á mikilvægi kynjajafnréttis og tengingu jafnréttis við sjálfbærni í heiminum. Nemendur læra m.a. að safna saman, vinna úr, reikna út, túlka og greina gögn, nýta þau í raunverulegum aðstæðum og bera niðurstöðurnar saman við þá útkomu sem búist var við.