Fjölskyldu- og húsdýragarðurinn
Bókanir fyrir skólahópa
Fræðsla fyrir nemendur í leik- og grunnskólum Reykjavíkurborgar
Samningur milli Skóla- og frístundasviðs (SFS) Reykjavíkurborgar og Fjölskyldu – og húsdýragarðs veitir nemendum í leik- og grunnskólum borgarinnar ókeypis aðgang að garðinum á skólatíma.
Frístundaheimili fá ókeypis aðgang að garðinum meðan á frístundastarfi stendur á grunnskólaárinu en greiða 300 krónur pr. barn á sumarstarfstíma.
Nemendur í skólum utan Reykjavíkurborgar greiða samkvæmt gjaldskrá sem finna má á neðst á síðunni.
Kynntu þér námskeiðin okkar.
Fræðsla fyrir leikskólahópa
Húsdýrin okkar
Lýsing fræðslu:
Húsdýragarðurinn býður leikskólabörnum að koma og fræðast um íslensku húsdýrin. Lögð er áhersla á helstu einkenni dýranna, nytjar og fjölskyldugerð.
Fyrirkomulag:
Starfsmenn garðsins leiða hópinn um svæðið, kynna börnunum fyrir dýrunum, miðla upplýsingum og svara spurningum. .
Lengd: 40 mínútur
Hámarksfjöldi nemenda í hóp: 20 börn
Fjöldi hópa: 2
Aldur: Leikskólastig
Hugrakkir krakkar
Í húsdýragarðinum leynast framandi dýr sem ekki finnast í íslenskri náttúru. Leikskólabörn fá hér tækifæri til að skoða og fræðast um skordýr, skriðdýr og froskdýr.
Starfsmaður tekur á móti hópnum og leiðir þau inn í leyndardóma framandi dýra garðsins. Börnin fá að skoða dýrin náið og þeir hugrökku fá ennfremur tækifæri til þess að halda á útvöldum dýrum.
Hámarksfjöldi nemenda í hóp: 12 börn
Fjöldi hópa: 1
Aldur: Leikskólastig
Almenn og sérsniðin leiðsögn
Húsdýragarðurinn býður upp á almenna leiðsögn, fyrir allan aldur, um garðinn. Starfsmaður leiðir hópinn um svæðið og kynnir hann fyrir öllum dýrum garðsins; húsdýrum, villtum dýr og framandi dýrum.
Einnig er hægt að óska eftir sérsniðinni leiðsögn með áherslu á ákveðin dýr.
Fjöldi hópa: 2
Fræðsla fyrir yngsta stig í grunnskóla
Almenn og sérsniðin leiðsögn
Almenn leiðsögn:
Húsdýragarðurinn býður upp á almenna leiðsögn, fyrir allan aldur, um garðinn. Starfsmaður leiðir hópinn um svæðið og kynnir hann fyrir öllum dýrum garðsins; húsdýrum, villtum dýr og framandi dýrum.
Sérsniðin leiðsögn
Einnig er hægt að óska eftir sérsniðinni leiðsögn með áherslu á ákveðin dýr.
Lengd: 60 mínútur.
Hámarksfjöldi í hóp: 26 börn
Fjöldi hópa: 2
Aldur: Grunnskólastig
Húsdýrin, nytjar og lifnaðarhættir
Lýsing fræðslu:
Húsdýragarðurinn býður upp á fræðslu um íslensku húsdýrin fyrir yngsta stig grunnskóla. Fræðslan tengist eftirfarandi námsefni;
- Komdu og skoðaðu hvað dýrin gera
- Vefur um íslensku húsdýrin
Starfsmaður leiðir hópinn um garðinn, fræðir hann um lifnaðarhætti og nytjar íslensku húsdýranna.
Lengd: 60 mínútur.
Tími: 09:45-10:45
Hámarksfjöldi í hóp: 26 börn
Fjöldi hópa: 2
Aldur: Yngsta stig grunnskóla
Athugið að fræðslan hentar best fyrir 3. bekk grunnskóla.
Fræðsla fyrir miðstig í grunnskóla
Vinnumorgunn fyrir 6. bekk
Lýsing fræðslu:
Húsdýragarðurinn býður nemendum 6. bekkja að taka til hendinni í garðinum og fá innsýn inn í almenn landbúnaðarstörf. Nemendur fá tækifæri til að taka þátt í umhirðu dýra ásamt því að fræðast um þau. Vinnumorgunn er vinsælasta fræðslan frá opnun garðsins.
Framkvæmd:
Tekið er á móti nemendahópnum og honum skipt í þrjá minni hópa. Hver hópur fær að sinna dýrum í fjósi, fjárhúsi og villtum dýrum. Í lok leiðsagnar kynna nemendur það sem þau lærðu fyrir samnemendum sínum.
Lengd: 2 klst. 45 mín
Tími: 07:45–10:30
Vikudagar: þriðjudagar og fimmtudagar
Hámarksfjöldi í hóp: 24 börn (skipt í 3 minni hópa)
Aldur: 6. bekkur grunnskóla
Dýrin og skynfærin
Lýsing fræðslu:
Húsdýragarðurinn býður nemendum miðstigs upp á verklega fræðslu um skynfæri dýra.
Fyrirkomulag:
Starfsmaður tekur á móti hópnum og skoðar með þeim hvernig dýrin skynja umhverfi sitt.
Lengd: 60 mín
Tími: 10:00-11:00 // 11:00-12:00
Vikudagar: Allir virkir dagar
Hámarksfjöldi í hóp: 26 börn
Fjöldi hópa: 2
Aldur: Miðstig grunnskóla
Almenn og sérsniðin leiðsögn
Húsdýragarðurinn býður upp á almenna leiðsögn, fyrir allan aldur, um garðinn. Starfsmaður leiðir hópinn um svæðið og kynnir hann fyrir öllum dýrum garðsins; húsdýrum, villtum dýr og framandi dýrum.
Einnig er hægt að óska eftir sérsniðinni leiðsögn með áherslu á ákveðin dýr.
Hámarksfjöldi nemenda í hóp: 26 börn
Fjöldi hópa: 2
Aldur: Grunnskólastig
Námskeið fyrir efsta stig í grunnskóla
Framandi dýr
Lýsing fræðslu:
Húsdýragarðurinn býður nemendum á unglingastigi að kynnast framandi dýrum og fræðast um mismunandi aðlögunarhæfni þeirra eftir búsvæðum.
Fyrirkomulag
Starfsmaður tekur á móti hópnum og leiðir þau inn í leyndardóma framandi dýra garðsins. Börnin fræðast um skordýr, skriðdýr og froskdýr, fá að skoða þau náið og snerta.
Lengd: 40 mínútur.
Tími: 10:00-11:00 // 11:00-12:00
Vikudagar: Allir virkir dagar
Hámarksfjöldi í hóp: 20 börn
Fjöldi hópa: 1
Aldur: 8.-10. bekkur
Villt íslensk spendýr
Lýsing fræðslu:
Húsdýragarðurinn býður nemendum í 8.-10. bekk að skoða og fræðast nánar um villt spendýr.
Fyrirkomulag:
Starfsmaður fræðir nemendur um lifnaðarhætti og hegðun villtra íslenskra spendýra og skoðar með þeim villtu dýr garðsins; refur, minkur, selir, hreindýr
Lengd: 60 mínútur.
Tími: 10:00-11:00 // 11:00-12:00
Vikudagar: Allir virkir dagar
Hámarksfjöldi í hóp: 26 börn
Fjöldi hópa: 2
Aldur: 8.-10. bekkur
Almenn og sérsniðin leiðsögn
Almenn leiðsögn:
Húsdýragarðurinn býður upp á almenna leiðsögn, fyrir allan aldur, um garðinn. Starfsmaður leiðir hópinn um svæðið og kynnir hann fyrir öllum dýrum garðsins; húsdýrum, villtum dýr og framandi dýrum.
Sérsniðin leiðsögn:
Einnig er hægt að óska eftir sérsniðinni leiðsögn með áherslu á ákveðin dýr.
Lengd: 60 mínútur.
Hámarksfjöldi í hóp: 26 börn
Fjöldi hópa: 2
Aldur: Grunnskólastig
Fræðsludeild
Fræðsludeild hefur verið starfandi innan garðsins frá upphafi. Í boði eru námskeið fyrir leik- og grunnskóla sem ýmist fara fram í leiðsagnarformi eða nemendur fá að upplifa á eigin skinni (hands on). Við viljum gjarnan að kennarar taki þátt í heimsókninni og séu starfsmönnum garðsins innan handar. Þá hvetjum við kennara til að undirbúa heimsóknina vel þannig að upplifunin af vettvangsferðinni nýtist þeim sem best í skólastarfinu.
Við hvetjum kennara til að kynna sér kostina og setja sig svo í samband við okkur vilji þeir bóka. Kennarar bóka með því að senda okkur póst á namskeid@husdyragardur.is. Gott er að eftirfarandi komi fram í póstinum: Nafn skóla og tengiliðs, hvaða námskeiði er óskað eftir, óskatími og dagsetning og fjöldi nemenda (fjöldatakmarkanir eru mismunandi eftir námskeiðum).
Gjaldskrá
| Fræðsla | Hópar | Verð kr. |
|---|---|---|
| Húsdýrin okkar | Leikskólar | 4.000 |
| Hugrakkir krakkar | Leikskólar | 4.000 |
| Almenn leiðsögn | Allir hópar | 5.000 |
| Hýsdýrin, nytjar og lifnaðarhættir | Yngsta stig | 5.000 |
| Dýrin og skynfærin | Miðstig | 5.000 |
| Vinnumorgunn | Miðstig | 8.500 |
| Framandi dýr | Elsta stig | 5.000 |
| Villt íslensk spendýr | Elsta stig | 5.000 |
Hafðu samband
Fjölskyldu- og húsdýragarðurinn
Múlavegur 2
104 Reykjavík