Eitthvað fyrir öll, alla daga ársins

Leiktæki sem þurfa mönnunar við eru opin alla daga yfir sumarið og um helgar snemma á haustin og vorin.

Önnur leiktæki eru opin allt árið.

Opið er í dýrahúsunum alla daga allt árið. 

teikning af krökkum í leikbátum
Fólk í fallturninum í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum

Fallturn

Fallturninn Ratatoskur kom í garðinn síðla sumars 2018. Nafnið kemur úr norrænni goðafræði, en Ratatoskur er íkorni sem hleypur upp og niður Ask Yggdrasils.

Fallturninn tók við af turninum Níðhöggi, sem var kominn til ára sinna. Ratatoskur er 21,6 metrar á hæð og fallhæðin er um 16,5 metrar. Hann nær að hámarki um 2,5 G sem að samsvarar um 24,5 m/s2.

Turninn sjálfur vegur um 13 tonn og hann stendur á steypukubbi sem vegur um 120 tonn. Alls eru 3.100 led ljós á turninum og hægt er að stjórna hverju og einu fyrir sig.

Lágmarkshæð í tækið

  • 97 cm í fylgd með fullorðnum
  • 105 cm án fylgdar

Takmarkanir

  • Barnshafandi
  • Fólk með alvarlega sjúkdóma
  • Fólk með hjartakvilla

Ekki má vera með lausa hluti á sér í fallturninum

Ekki má sparka af sér skóm á meðan að á ferð stendur

Vinsamlega fylgið fyrirmælum starfsfólks

Sleggjan, blár himinn og grænt tré

Sleggjan

Sveiflutækið Mjölnir kom í garðinn sumarið 2019. Mjölnir vísar í hamar þórs úr norrænni goðafræði. Leiktækið var áður í Smáralind.

Lágmarks- og hámarkshæð í tækið

  • Lágmarkshæað 125 cm
  • Hámarkshæð 190 cm

Takmarkanir

  • Barnshafandi
  • Fólk með hjartakvilla
  • Fólk með önnur veikindi

Ekki má vera með lausa hluti á sér í tækinu

Vinsamlega fylgið fyrirmælum starfsfólks

Tvær stelpur í klessubát í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum

Bátar

Bátarnir komu upphaflega í garðinn sumarið 2002, en árið 2015 komu nýir bátar frá Ítalíu. Þeir spila tónlist á meðan að á ferð stendur.

Lágmarkshæð í tækið

  • 105 cm eða í fylgd

Takmarkanir

  • Barnshafandi
  • Fólk með alvarlega sjúkdóma

Ekki má vera með beitta hluti í bátunum

Farþegar skulu sitja á meðan að á ferð stendur

Vinsamlega farið eftir fyrirmælum starfsfólks

Krakkar keyra um á bílum í ökuskóla Fjölskyldu- og húsdýragarðsins.

Ökuskóli

Ökuskólinn er eitt elsta leiktækið í garðinum og hefur verið starfandi síðan Fjölskyldugarðurinn opnaði, árið 1993. Sumarið 2021 var ökuskólinn gerður upp í samstarfi við Samgöngustofu.

Hægt er að keyra um í Kátugötu, sem ungir vegfarendur ættu að kannast við. En Samgöngustofa sendir út upplýsingabækling um samgöngur fyrir krakka þar sem sögusviðið er Kátugata.

Lágmarks- og hámarkshæð í tækið

  • Lágmarkshæð 105 cm
  • Hámarkshæð 150 cm

Takmarkanir

  • Fólk með hjartakvilla
  • Fólk með alvarlega sjúkdóma

Ekki má klessa bílunum saman

Vinsamlega fylgið fyrirmælum starfsfólks

Börn og fullorðnir um borð í lestinni í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum.

Lest

Lest kom fyrst í garðinn árið 2002 og hét Tanngnjóstur. Tækið var upphaflega lyftari sem var breytt í lest.

Ný lest var hins vegar tekin í notkun árið 2019, sem heitir Tanngrisnir. Tanngnjóstur og Tanngrisnir voru geithafrar Þórs sem drógu vagn hans.

Lágmarkshæð í tækið

  • 105 cm eða í fylgd

Takmarkanir

  • Barnshafandi
  • Fólk með alvarlega sjúkdóma

Sitja skal í sama sæti innan í vagninum á meðan að á ferð stendur

Vinsamlega fylgið fyrirmælum starfsfólks

Stefnið á rugguskipinu Elliða í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum.

Rugguskip

Skipið Elliði kom í garðinn sumarið 2020, en nafnið vísar til skips gamla Ketilbjarnar landnámsmanns. Áður stóð rugguskipið Krakkafoss á sama stað.

Til gamans má geta að fyrrum starfmaður garðsins, Ari Arnaldsson hannaði og myndskreytti nýja skipið.

Lágmarkshæð í tækið

  • 92 cm í fylgd með fullorðnum
  • 105 cm án fylgdar

Takmarkanir

  • Barnshafandi
  • Fólk með hjartakvilla
  • Fólk með alvarlega sjúkdóma

Sitja skal á sama stað á meðan að á ferð stendur og halda í stöngina

Ekki má skila persónulega muni eftir á pallinum

Vinsamlega fylgið fyrirmælum starfsfólks

Ljósmynd af hringeggju og bátum í fjölskyldugarðinum

Hringekjan

Hringekjan Heiðrún kom í garðinn sumarið 2001 og var hún enduruppgerð árið 2019. Nafnið vísar í geitina Heiðrúnu úr norrænni goðafræði.

Hringekjan skartar myndum af íslenskum jólasveinum og persónum úr norrænni goðafræði.

Lágmarkshæð í tækið

  • 105 cm eða í fylgd með fullorðnum

Takmarkanir

  • Barnshafandi
  • Fólk með alvarlega sjúkdóma

Sitja skal í sama sæti á meðan að á ferð stendur

Vinsamlega fylgið fyrirmælum starfsfólks

Hafðu samband

Fjölskyldu- og húsdýragarðurinn
Múlavegur 2
104 Reykjavík