Ekki bara húsdýr

Íbúar garðsins eru fleiri en margir halda.

Að auki við algengustu húsdýrin finnur þú þar heimskautarefi, hreindýr og seli.

Þá er þar nokkur fjöldi framandi dýra, þeirra á meðal skrið- og froskdýr.

Ljósmynd af ref í húsdýragarðinum

Heimskautarefur

Heimskautarefurinn er eina spendýrið sem kom ekki með fólki til landsins. Talið er að fyrstu dýrin hafi komið með hingað með hafís í lok seinustu ísaldar, fyrir um 10.000 árum. Tvö megin litaafbrigði af heimskautaref eru í íslenska stofninum, hvítur og mórauður (sem er algengari).

Refir eru einkvænisdýr og lifa í pörum og verja afmarkað heimasvæði, sem kallast óðal fyrir öðrum refum. Þeir leita sér að æti á þessu svæði og merkja það með þvagi. Refaparið hjálpast að við að koma yrðlingum á legg. Einnig kemur fyrir að ein eða fleiri ársgamlar dætur parsins aðstoði þau við að ala upp yngri systkini. Það má því segja að refurinn sé fremur fjölskyldumiðaður að eðlisfari.

Fjölskyldugerð
Steggur, tófa og yrðlingur

Fengitími
Snemma á vorin

Fjöldi afkvæma
6 yrðlingar að meðaltali

Komutími til Íslands
Líklegast fyrir um 10.000 árum

Kind með þrjú lömb í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum.

Íslenska sauðkindin

Íslenska sauðkindin hefur verið á Íslandi frá landnámi og líklegast er að hún sé komin af norður-evrópska stuttrófukyninu. Önnur fjárkyn í Evrópu eru með langa rófu. Mörg einkenni íslensku sauðkindarinnar eiga sér hliðstæðu í gamla, norska stuttrófukyninu.

Í báðum kynjum koma fyrir litirnir grátt, golsótt, botnótt, svart og mórautt, stutt rófa eða dindill og horn. Sauðkindur eru yfirleitt félagslynd fjölkvænisdýr.

Villt sauðfé er gjarnan í litlum hjörðum, færri en tíu, en þó eru dæmi um meira en hundrað kindur saman í hjörð. Hjarðir eru oft kynskiptar þannig að ær og lömb halda saman en hrútar mynda sérstakar hjarðir nema á fengitíma.

Fjölskyldugerð
Hrútur, ær og lamb

Fengitími
Nær hámarki í desember / janúar

Fjöldi afkvæma
1-2 lömb (stundum fleiri)

Komutími til Íslands
Við landnám

Þyngd
Hrútur 80-100 kg og ær 60-70 kg

Meðgöngutími
142 til 145 dagar, tæpir fimm mánuðir

Nytjar
Ull, kjöt, húð og horn

Kálfur og kú í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum.

Íslenska kýrin

Íslenska kýrin er fyrst og fremst ræktuð til mjólkurframleiðslu og öll mjólkurframleiðsla í landinu byggist á þessu kyni. Íslenska kýrin býr yfir mikilli litafjölbreytni en er frekar smávaxin miðað við aðrar tegundir. Langflestir íslenskir nautgripir eru kollóttir, það er hafa ekki horn.

Nautgripir eru jórturdýr og eru með fjórskiptan maga. Grasið fer í fyrstu lítt tuggið í vömbina þar sem fæðan malast og hún brotin niður. Þá kemur að jórtrinu þar sem dýrið ælir því sem hún hefur étið upp í munn og tyggur fæðuna aftur. Fínmöluð fæðan berst svo áfram í hin magahólfin þrjú, keppinn, lakann og vinstrið. Þar meltist fæðan enn frekar áður en hún berst í garnirnar.

Fjölskyldugerð
Naut, kýr og kálfur

Fengitími
Allt árið

Fjöldi afkvæma
1 kálfur (sjaldan 2)

Komutími til Íslands
Við landnám

Þyngd
Kýr 450 kg og naut 600 kg.

Meðgöngutími
9 mánuðir

Nytjar
Mjólk, kjöt, húð og horn

Tvö hreindýr í snjó í Fjölskuldu- og húsdýragarðinum.

Hreindýr

Íslensk hreindýr eru afkomendur dýra sem voru flutt til landsins frá norðurhluta Skandinavíu í lok 18.aldar og hafa allt frá því lifað villt hér á landi. Hreindýr eru með hár sem eru hol að innan og einangra því mjög vel. Þau þola til að mynda allt að -40° frost án þess hraða efnaskiptum til að lágmarka hitatap.

Þau eru eina tegund hjartardýra þar sem bæði kynin hafa horn. En um 4% dýra í stofninum eru kollótt. Hreindýrin fella hornin einu sinni á ári, tarfarnir þegar fengitíma lýkur seint á haustin og simlurnar þegar kálfarnir fæðast á vorin. Síðan vaxa ný horn í stað þeirra.

Fjölskyldugerð
Tarfur, simla og kálfur

Fengitími
Hefst í lok september eða byrjun október, varir í 3-5 vikur

Fjöldi afkvæma
Einn kálfur

Komutími til Íslands
Árið 1771

Þyngd
Tarfur 120-200 kg, simla 80-100 kg.

Meðgöngutími
Rúmlega sjö mánuðir

Nytjar
Kjöt, feldur og horn

Nærmynd af svíni í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum.

Svín

Svín sem húsdýr kallast alisvín og eru komin af villisvínum. Þau eru klaufdýr, en ekki jórturdýr líkt og önnur klaufdýr garðsins. Þau eru gildvaxin um allan skrokkinn, leggjastutt og með stuttan, þykkan háls. Ennið er flatt, trýnið nokkuð langt og augun fremur lítil. Halinn er lítill og snúinn og feldur lítill. Hárin kallast burst og voru nýtt í tannbursta áður fyrr en í dag helst í alls kyns bursta og pensla.

Litur svína er oftast hvítur en einnig eru til dökk og flekkótt svín. Gyltur gjóta að meðaltali 10 til 12 grísum í goti og hafa 14 spena og því komast yfirleitt allir á spena í einu. Eftir fyrsta sólarhringinn er komin regla á hvaða grís á hvaða spena og hver grís sýgur sinn spena eftir það.

Fjölskyldugerð
Göltur, gylta og grís

Fengitími
Allt árið

Fjöldi afkvæma
10 til 12 grísir að meðaltali

Komutími til Íslands
Við landnám

Þyngd
200 til 250 kg

Meðgöngutími
3 mánuðir, 3 vikur og 3 dagar (114 til 116 dagar)

Nytjar
Kjöt, húð og hár

Naggrís í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum.

Naggrís

Naggrísir eru upprunalega frá Suður Ameríku (Ekvador, Bólivía og Perú). Þeir lifðu í grösugum hlíðum Andesfjallanna. Fyrir um 3.000 árum var farið að halda naggrísi sem húsdýr í Suður Ameríku. Meðal þeirra sem ræktuðu naggrísi voru Inkar (indjánar í Suður Ameríku) og aðrir sem bjuggu við Andesfjöllin. Þeir teljast því til fyrstu húsdýra mannsins.

Upprunalega voru naggrísir notaðir til matar, en seinna einnig til dýrafórna (500-0 f.kr.). Enn þann dag í dag halda ættflokkar í Andesfjöllum naggrísi sem gæludýr en einnig til matar. Hér á landi eru þeir gæludýr og verða þriggja til fimm ára gamlir.

Fjölskyldugerð
Karl, kerling og naggrísaungi

Fengitími
Allt árið

Fjöldi afkvæma
1-5 ungar

Komutími til Íslands
Ekki vitað, en komu til Evrópu á 17.öld

Þyngd
800 til 1.200 grömm

Meðgöngutími
50 til 60 dagar

Nytjar
Gæludýr

Hafðu samband

Fjölskyldu- og húsdýragarðurinn
Múlavegur 2
104 Reykjavík