Education for children in Reykjavík City preschools and primary schools

An agreement between Reykjavík City’s Department of Education and Youth (SFS) and Reykjavík Family Park and Zoo grants children in the City’s preschools and primary schools free admission to the park during school hours.

After-school programs receive free admission to the park for recreational activities throughout the primary school year, but pay 300 króna per child during summer programs.

Students from schools outside Reykjavík City pay according to the fee schedule at the bottom of the page.

Explore our classes.

Fræðsla fyrir leikskólahópa

 

Nærmynd af kú í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum

Húsdýrin okkar

Lýsing fræðslu​:
Húsdýragarðurinn býður leikskólabörnum að koma og fræðast um íslensku húsdýrin. Lögð er áhersla á helstu einkenni dýranna, nytjar og fjölskyldugerð.

Fyrirkomulag​:
Starfsmenn garðsins leiða hópinn um svæðið, kynna börnunum fyrir dýrunum, miðla upplýsingum og svara spurningum. .

Lengd: 40 mínútur
Hámarksfjöldi nemenda í hóp: 20 börn
Fjöldi hópa: 2
Aldur: Leikskólastig

Froskdýr í búri í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum.

Hugrakkir krakkar

Lýsing fræðslu​:
Í húsdýragarðinum leynast framandi dýr sem ekki finnast í íslenskri náttúru. Leikskólabörn fá hér tækifæri til að skoða og fræðast um skordýr, skriðdýr og froskdýr. ​
 
Fyrirkomulag​:
Starfsmaður tekur á móti hópnum og leiðir þau inn í leyndardóma framandi dýra garðsins. Börnin fá að skoða dýrin náið og þeir hugrökku fá ennfremur tækifæri til þess að halda á útvöldum dýrum.
 
Lengd: 40 mínútur
Hámarksfjöldi nemenda í hóp: 12 börn
Fjöldi hópa: 1
Aldur: Leikskólastig
Selur í lauginni í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum.

Almenn og sérsniðin leiðsögn

Almenn leiðsögn​:
Húsdýragarðurinn býður upp á almenna leiðsögn, fyrir allan aldur, um garðinn. Starfsmaður leiðir hópinn um svæðið og kynnir hann fyrir öllum dýrum garðsins; húsdýrum, villtum dýr og framandi dýrum. ​
 
Sérsniðin leiðsögn​:
Einnig er hægt að óska eftir sérsniðinni leiðsögn með áherslu á ákveðin dýr.
 
Lengd: 40 mínútur
Hámarksfjöldi nemenda í hóp: 20 börn
Fjöldi hópa: 2 
Aldur: Leikskólastig

Education for the lower primary level

Nærmynd af kiðlingi í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum.

Almenn og sérsniðin leiðsögn

Almenn leiðsögn​:
Húsdýragarðurinn býður upp á almenna leiðsögn, fyrir allan aldur, um garðinn. Starfsmaður leiðir hópinn um svæðið og kynnir hann fyrir öllum dýrum garðsins; húsdýrum, villtum dýr og framandi dýrum. ​

Sérsniðin leiðsögn​
Einnig er hægt að óska eftir sérsniðinni leiðsögn með áherslu á ákveðin dýr. ​

Lengd: 60 mínútur.​
Hámarksfjöldi í hóp: 26 börn​
Fjöldi hópa: 2​
Aldur: Grunnskólastig

Hestur og folald í túninu í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum.

Húsdýrin, nytjar og lifnaðarhættir

Lýsing fræðslu:
Húsdýragarðurinn býður upp á fræðslu um íslensku húsdýrin fyrir yngsta stig grunnskóla. Fræðslan tengist eftirfarandi námsefni;

  • Komdu og skoðaðu hvað dýrin gera
  • Vefur um íslensku húsdýrin

Starfsmaður leiðir hópinn um garðinn, fræðir hann um lifnaðarhætti og nytjar íslensku húsdýranna.

Lengd: 60 mínútur.
Tími: 09:45-10:45
Hámarksfjöldi í hóp: 26 börn
Fjöldi hópa: 2
Aldur: Yngsta stig grunnskóla

Athugið að fræðslan hentar best fyrir 3. bekk grunnskóla.

Fræðsla fyrir miðstig í grunnskóla

 

Krakkar gefa hreindýri að éta í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum.

Vinnumorgunn fyrir 6. bekk

Lýsing fræðslu​:
Húsdýragarðurinn býður nemendum 6. bekkja að taka til hendinni í garðinum og fá innsýn inn í almenn landbúnaðarstörf. Nemendur fá tækifæri til að taka þátt í umhirðu dýra ásamt því að fræðast um þau. Vinnumorgunn er vinsælasta fræðslan frá opnun garðsins.​

Framkvæmd​:
Tekið er á móti nemendahópnum og honum skipt í þrjá minni hópa. Hver hópur fær að sinna dýrum í fjósi, fjárhúsi og villtum dýrum. Í lok leiðsagnar kynna nemendur það sem þau lærðu fyrir samnemendum sínum. ​

​Lengd: 2 klst. 45 mín
Tími: 07:45–10:30​
Vikudagar: þriðjudagar og fimmtudagar​
Hámarksfjöldi í hóp: 24 börn (skipt í 3 minni hópa)​
Aldur: 6. bekkur grunnskóla​​​

Svín hnusar af graskeri í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum.

Dýrin og skynfærin

Lýsing fræðslu:
Húsdýragarðurinn býður nemendum miðstigs upp á verklega fræðslu um skynfæri dýra. ​

Fyrirkomulag:
Starfsmaður tekur á móti hópnum og skoðar með þeim hvernig dýrin skynja umhverfi sitt. ​

​Lengd: 60 mín ​
Tími: 10:00-11:00 // 11:00-12:00​
Vikudagar: Allir virkir dagar​
Hámarksfjöldi í hóp: 26 börn ​
Fjöldi hópa: 2​
Aldur: Miðstig grunnskóla

Froskdýr í búri í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum.

Almenn og sérsniðin leiðsögn

Almenn leiðsögn​:
Húsdýragarðurinn býður upp á almenna leiðsögn, fyrir allan aldur, um garðinn. Starfsmaður leiðir hópinn um svæðið og kynnir hann fyrir öllum dýrum garðsins; húsdýrum, villtum dýr og framandi dýrum. ​
 
Sérsniðin leiðsögn​:
Einnig er hægt að óska eftir sérsniðinni leiðsögn með áherslu á ákveðin dýr.
 
Lengd: 60 mínútur
Hámarksfjöldi nemenda í hóp: 26 börn
Fjöldi hópa: 2
Aldur: Grunnskólastig

Námskeið fyrir efsta stig í grunnskóla

 

Slanga í búri í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum

Framandi dýr

Lýsing fræðslu:​
Húsdýragarðurinn býður nemendum á unglingastigi að kynnast framandi dýrum og fræðast um mismunandi aðlögunarhæfni þeirra eftir búsvæðum. ​

Fyrirkomulag​
Starfsmaður tekur á móti hópnum og leiðir þau inn í leyndardóma framandi dýra garðsins. Börnin fræðast um skordýr, skriðdýr og froskdýr, fá að skoða þau náið og snerta. ​

Lengd: 40 mínútur.​
Tími: 10:00-11:00 // 11:00-12:00​
Vikudagar: Allir virkir dagar​
Hámarksfjöldi í hóp: 20 börn​
Fjöldi hópa: 1​
Aldur: 8.-10. bekkur

Hvítur minkur í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum.

Villt íslensk spendýr

Lýsing fræðslu:​
Húsdýragarðurinn býður nemendum í 8.-10. bekk að skoða og fræðast nánar um villt spendýr. ​

Fyrirkomulag:​
Starfsmaður fræðir nemendur um lifnaðarhætti og hegðun villtra íslenskra spendýra og skoðar með þeim villtu dýr garðsins; refur, minkur, selir, hreindýr​

Lengd: 60 mínútur.​
Tími: 10:00-11:00 // 11:00-12:00​
Vikudagar: Allir virkir dagar​
Hámarksfjöldi í hóp: 26 börn​
Fjöldi hópa: 2​
Aldur: 8.-10. bekkur

Nærmynd af hænu í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum.

Almenn og sérsniðin leiðsögn

Almenn leiðsögn:​
Húsdýragarðurinn býður upp á almenna leiðsögn, fyrir allan aldur, um garðinn. Starfsmaður leiðir hópinn um svæðið og kynnir hann fyrir öllum dýrum garðsins; húsdýrum, villtum dýr og framandi dýrum. ​

Sérsniðin leiðsögn:​
Einnig er hægt að óska eftir sérsniðinni leiðsögn með áherslu á ákveðin dýr. ​

Lengd: 60 mínútur.​
Hámarksfjöldi í hóp: 26 börn​
Fjöldi hópa: 2​
Aldur: Grunnskólastig

Fræðsludeild

Fræðsludeild hefur verið starfandi innan garðsins frá upphafi. Í boði eru námskeið fyrir leik- og grunnskóla sem ýmist fara fram í leiðsagnarformi eða nemendur fá að upplifa á eigin skinni (hands on). Við viljum gjarnan að kennarar taki þátt í heimsókninni og séu starfsmönnum garðsins innan handar. Þá hvetjum við kennara til að undirbúa heimsóknina vel þannig að upplifunin af vettvangsferðinni nýtist þeim sem best í skólastarfinu.

Við hvetjum kennara til að kynna sér kostina og setja sig svo í samband við okkur vilji þeir bóka. Kennarar bóka með því að senda okkur póst á namskeid@husdyragardur.is. Gott er að eftirfarandi komi fram í póstinum: Nafn skóla og tengiliðs, hvaða námskeiði er óskað eftir, óskatími og dagsetning og fjöldi nemenda (fjöldatakmarkanir eru mismunandi eftir námskeiðum).

Gjaldskrá

Fræðsla Hópar Verð kr.
Húsdýrin okkar Leikskólar 4.000
Hugrakkir krakkar Leikskólar 4.000
Almenn leiðsögn Allir hópar 5.000
Hýsdýrin, nytjar og lifnaðarhættir Yngsta stig 5.000
Dýrin og skynfærin Miðstig 5.000
Vinnumorgunn Miðstig 8.500
Framandi dýr Elsta stig 5.000
Villt íslensk spendýr Elsta stig 5.000
Leikskólar og grunnskólar utan Reykjavíkurborgar greiða fyrir leiðsögnina og aðgangseyri samkvæmt gjaldskrá.

Contact us

Reykjavík Family Park and Zoo
Múlavegur 2
104 Reykjavík