Þriðjungur til í að skilja bílinn eftir heima

Að fara með strætó

Niðurstöður úr rannsóknarverkefninu Tilraunaborgir (Pilot Cities Project) voru nýlega kynntar í umhverfis- og skipulagsráði. Þær sýna annars vegar að flokkun úrgangs er venjubundin hegðun og hins vegar að þriðjungur svarenda sem væru til í að hætta að aka sjálfir til og frá vinnu og fara með strætó eða öðru móti. 

Yfir 90% svarenda flokka reglulega pappír, plast og lífrænan úrgang og rúmlega helmingur flokkar einnig sérstaklega efni eins og lyf, húsgögn og byggingarúrgang. 

Meginniðurstaðan er að flokkunarvenjur Reykvíkinga ráðast fyrst og fremst af aðgengi að innviðum og þjónustu, en síður af aldri, kyni eða öðrum lýðfræðilegum þáttum. Flokkun daglegs heimilisúrgangs er orðin rótgróin venja hjá flestum, en aukin endurvinnsla annarra úrgangsflokka krefst betra aðgengis, skýrari upplýsinga og þægilegri úrræða.

Þriðjungur bílstjóra vill skipta um ferðamáta

Rannsóknin sýnir jafnframt að einkabíllinn er enn langalgengasti ferðamátinn á höfuðborgarsvæðinu. Þrátt fyrir það segist um þriðjungur þeirra sem aka til vinnu vilja skipta yfir í aðra ferðamáta, sérstaklega almenningssamgöngur, hjólreiðar eða rafknúin létt farartæki. 

Alls búa 98% svarenda nógu nálægt vinnustað sínum til að geta nýtt virka ferðamáta, en helstu hindranir eru kostnaður, áreiðanleiki og skortur á samkeppnishæfum valkostum við einkabílinn. 

Íbúar lýsa vilja til breytinga

Niðurstöðurnar undirstrika að lykillinn felst fyrst og fremst í bættum innviðum, bæði fyrir úrgangsflokkun og vistvænar samgöngur. Íbúar lýsa vilja til breytinga, en leggja áherslu á að lausnirnar þurfi að vera einfaldar, aðgengilegar og henta daglegu lífi fólks.

Tilraunaborgir (e. Pilot Cities) er verkefni styrkt af Climate Kic undir merkjum NetZeroCities. Reykjavík hlaut styrkinn vegna þátttöku borgarinnar í Evrópusamstarfi 112 borga sem stefna að því að verða kolefnishlutlaus og snjöll árið 2030 með gerð Loftslagsborgarsamnings.