Gjaldsvæði bílastæða í borgarlandi
Kortið hér að neðan sýnir gróflega skiptingu gjaldsvæða í borginni. Ef kortinu og merkingum á mælum ber ekki saman eru það merkingar á mælunum sem gilda. Einnig ef það eru tímabundnar lokanir á stæðum vegna göngugatna, sumargatna, framkvæmda og fleira, þá eru það umferðarmerkingar á staðnum sem gilda.
Skýringar á litamerkingum á korti
- Rautt - Gjaldsvæði 1
- Ljósrautt - Gjaldsvæði 1 (íbúakort gilda)
- Blátt - Gjaldsvæði 2
- Grænt - Gjaldsvæði 3
- Appelsínugult - Gjaldsvæði 4