Fimmti fundur með þátttakendum loftslagsborgarsamnings

Snorri Jökull, Hafdís Hanna, Helga Barðadóttir og Hrönn Hrafnsdóttir.
Fundur

Þátttakendur í Loftslagsborgarsamningi Reykjavíkurborgar hittust á fundi í Borgartúni í vikunni. Þetta var fimmti fundurinn með þátttakendum frá aðalfundinum í október. Á þessum fundi var fjallað um orkuskipti og F gös og um aðgerð Orkuveitunnar í tengslum við samninginn.

Dagskrá 

  • Helga Barðadóttir frá umhverfis-orku-og loftslagsráðuneyti: Orkuskipti og F gös.
  • Snorri Jökull Egilsson fór yfir aðgerðir Orkuveitunnar - áskoranir og árangur .
  • Samtal um aðgerðir. Sjálfbærnistofnun leiðir samtalið í samvinnu við Reykjavíkurborg.

Áður hafa verið þemafundir um ferðaþjónustu, samgöngur, úrgangsmál og nýsköpun sem allir voru fræðandi og vel sóttir. Þátttakendur í loftslagsborgarsamningum geta því notið góðs af því að fá að fylgjast með því nýjasta sem er að gerast í hverjum geira fyrir sig og mynda tengslanet sem getur nýst sem nesti í loftslagsleiðangrinum.

Hrönn Hrafnsdóttir, deildarstjóri loftslagsmála hjá Reykjavíkurborg, opnaði fundinn og nefndi að þetta væri fyrsta samtalið til að þróa og móta aðgerðir fyrir aðra útgáfu loftslagsborgarsamnings Reykjavíkur. Hafdís Hanna Ægisdóttir, forstöðumaður Sjálfbærnistofnunar Háskóla Íslands, var fundarstjóri.

Viltu vera með í næsta samningi? 

Loftslagsborgarsamningur heimasíða