Frá tabú í traust

Teikning af börnum sulla í polli í leikskóla.

Frá tabú í traust er átaksverkefni um kynfræðslu barna. Í tilefni þess gaf Jafnréttisskólinn út netfræðsluröð fyrir foreldra og starfsfólk um kynfræðslu yngri barna, ásamt bæklingum um úrræði og ráð ef barn greinir frá ofbeldi. Netfræðslan skiptist í fimm hluta: Kynfræðslu yngri barna, kynferðisleg hegðun barna, ráð fyrir árangursríka fræðslu, fræðsluefni og verkfæri og kynferðislegt ofbeldi gagnvart börnum. 

Bæklingar fyrir aðstandendur og starfsfólk

Erfið spjöll er handbók unnin af Jafnréttisskólanum fyrir starfsfólk skóla- og frístundasvið um viðbrögð þegar barn eða ungmenni greinir frá ofbeldi.

Að ná áttum er bæklingur frá Jafnréttisskólanum til stuðnings aðstandenda barns þegar koma upp áhyggjur af velferð þess vegna alvarlegs atviks. 

Hvað nú? er bæklingur frá Jafnréttisskólanum til stuðnings við foreldra og forsjáraðila barna og ungmenna sem orðið hafa fyrir kynferðislegu ofbeldi eða áreitni. 

Eitt skref í einu er bæklingur frá Jafnréttisskólanum til stuðnings aðstandenda barna og ungmenna sem orðið hafa fyrir kynferðislegu ofbeldi eða áreitni. 

Úrræði

Ofbeldi gegn börnum er upplýsingasíða lögreglunnar. 

Hvert get ég leitað er veggspjald með ýmis úrræðum sem standa til boða. 

Hvernig nálgast ég umræðuna við barnið eru ráð fyrir áhyggjufulla foreldra.

Upplýsingabæklingur frá Stígamótum um kynferðisofbeldi og þjónustu Stígamóta á fjölmörgum tungumálum. 

Kynbundið ofbeldi og skólakerfið er leiðarvísir fyrir stjórnendur og starfsfólk í skólakerfinu varðandi forvarnir, viðbrögð og úrvinnslu mála er varða kynbundið ofbeldi.