Barnamenningarhátíð 2026 – Samkennd og samfélag

Kátri krakkar í Breiðholtsskóla

Á Barnamenningarhátíð setja börn mark sitt á menningarlíf borgarinnar dagana 20. – 26. apríl. Hátt í 10 þúsund börn taka þátt í Barnamenningarhátíð með einum eða öðrum hætti á meðan á hátíðinni stendur.

Allir viðburðir ókeypis!

Fjölbreyttir viðburðir fara fram í grunnskólum, leikskólum, frístundamiðstöðvum, menningarstofnunum, listaskólum og víðar á meðan á hátíðinni stendur.  Nú er komið að okkur öllum að njóta og upplifa og enginn þarf að greiða krónu fyrir, því allt er ókeypis! 

Nálgast má alla viðburði hátíðarinnar á barnamenningarhatid.is.

Sama hver það er – lag Barnamenningarhátíðar

VÆB flytur lag Barnamenningarhátíðar í ár „Sama hver það er“ en dúettinn skipa bræðurnir Matthías Davíð Matthíasson og Hálfdán Helgi Matthíasson.  

Þema Barnamenningarhátíðar í ár er „samkennd og samfélag“ og fengu nemendur í 4. bekk í borginni það verkefni að svara ýmsum spurningum um hvað felist í orðunum samkennd og samfélag. Texti lagsins er byggður á svörum barnanna.

VÆB - Bræðurnir Matthías og Hálfdán
Matthías og Hálfdán frumfluttu lag Barnamenningarhátíðar í ár í Breiðholtsskóla.

Matthías og Hálfdán sömdu lag og texta og segja að samvinnan við börnin hafi verið mjög skemmtileg og gefandi. Þeir eru fullir tilhlökkunar að flytja lagið á opnunarviðburði Barnamenningarhátíðar í Eldborgarsal Hörpu fyrir fullum sal barna þann 20. apríl næstkomandi. 

Söngvavor

Þriðjudaginn 21. apríl stíga 1300 leikskólabörn á sviðið í Eldborgarsal Hörpu og flytja lög eftir Dr. Gunna. Börnin hafa æft lögin af kappi í leikskólum borgarinnar og koma nú saman á sviði til að syngja. Þetta er eitt vinsælasta og fjölmennasta atriði Barnamenningarhátíðar og er Eldborgarsalurinn þétt setinn af foreldrum, ömmum, öfum og frændfólki. 

Leikskólabörn á sviði í Eldborg í Hörpu á Barnamenningarhátíð 2025
Leikskólabörn á sviði í Eldborg í Hörpu á Barnamenningarhátíð 2025

Íslensk hús

Nemendur í 10. bekk Norðlingaskóla hafa í vetur valið sér íslenskt hús sem þeim finnast falleg og áhugaverð. Þau öfluðu sér upplýsinga um þau og útfærðu þau sem lítil leirverk. Nokkrir nemendur glerjuðu húsin sem þau völdu. Húsin eru kirkjur, vitar, flugstöðvar og önnur áhugaverð hús eins og til dæmis Alþingishúsið. Nemendur á yngsta stigi skólans eru að læra um land og þjóð og þróun húsa. Nemendur völdu eitt af húsunum sem 10. bekkur gerðu og gerðu teikningar af því húsi. Einnig verða til sýnis blómakransar eftir nemendur skólans. Verkin eru til sýnis í Borgarbókasafni Árbæjar.

Sjálflýsandi draugar, töfrasprotar og tröllahringir

Í Safnahúsinu er sýning sem er afrakstur samstarfverkefnis fjögurra leikskóla í Reykjavík sem allir hafa notað safnið sem námsvettvang. Leikskólabörnin heimsóttu Listasafn Íslands og  Safnahúsið þrisvar sinnum og unnið var út frá sýningunni Stattu og vertu að steini! Þjóðsögur í íslenskri myndlist. Rýnt var í tvö listaverk með áherslu á  þjálfun í myndlæsi, virka tjáningu og hlustun. Einnig unnu börnin skapandi efni í listasmiðjum þar sem unnið var út frá þremur þemum sýningarinnar: draugum, álfum/huldufólki og tröllum. Börnin unnu svo listaverk og eru þau verk til sýnis í Safnahúsinu.

Fjör í froðudiskói

Sundlaugadiskó

Í tilefni Barnamenningarhátíðar ætla Dalslaug og Borgarbókasafnið í Úlfarsárdal að taka höndum saman og bjóða upp á skemmtilega dagskrá. Byrjað verður á fjölskyldudiskói þar sem er tilvalið að dansa og skemmta sér. Síðan verður sundlaugadiskó í innilauginni og að því loknu er alveg tilvalið að skella sér í náttfötin og fara á sögustund sem boðið verður upp á á bókasafninu. Frítt í sund fyrir börn 15 ára og yngri. 

Ævintýrin lifna við

Sumardaginn fyrsta verður fagnað í ævintýralegu umhverfi Elliðaárstöðvar. Boðið verður upp á fjölskyldugleði við Elliðaárstöð þar sem krakkar og fullorðnir á öllum aldri geta leikið sér og haft gaman. Vatni verður hleypt á hinn geysivinsæla Vatnsleikjagarð, kaffihúsið Elliði og Gestastofa Elliðaárstöðvar opna dyr sínar fyrir gestum dalsins, skemmtilegir DJ-tónar munu óma um svæðið, Hugmyndasmiðir bjóða upp á fjölskyldusmiðju í Gestastofunni frá 13-15 og hægt verður að taka þátt í hjóladagskrá Reiðhjólabænda. 

Skapandi skósmiðja

Skapandi skósmiðja

Börnum og fjölskyldum er boðið í skapandi skósmiðju í Borgarbókasafninu Grófinni þar sem ímyndunaraflið ræður ferðinni. Taktu með þér gamlan skó og breyttu honum í skemmtilegt skólistaverk. Skórinn þinn sýnir eitthvað um þig, áhugamál og drauma - og sporin sem þig langar að skilja eftir. Það verður allskonar skraut á staðnum en þú getur líka komið með þitt eigið.

Tónlist um alla borg

Fjölbreytt tónlistaratriði verða í boði á Barnamenningarhátíð. Krakkabarokk í Fella- og Hólakirkju, langspilstilraunir í Borgarbókasafninu Spönginni og Skólahljómsveitir munu troða upp út um alla borg.

 

Tónlistaratriði á Big Bang tónlistarhátíðinni
Tónlistaratriði á Big Bang tónlistarhátíðinni

Big Bang – tónlistarhátíðin

Á sumardaginn fyrsta verður Big Bang tónlistarhátíðin í aðalhlutverki. Hátíðin er ævintýraleg evrópsk tónlistarhátíð fyrir unga áheyrendur. Markmið hátíðarinnar er að auka aðgengi barna að tónlist og frítt á alla viðburði. Á dagskránni er meðal annars Dans Afríka, Míní Rave, Múrbalasláttur, Bernskubrek og margt fleira.  Hátíðin verður  haldin í Borgarbókasafninu Gerðubergi og í Tónskóla Sigursveins í Hraunbergi frá klukkan 11:00 -  16:00. 

Ævintýrahöllin í Breiðholti

Ævintýrahöll Barnamenningarhátíðar fer fram helgina 25. og 26. apríl. Ævintýrahöllin hefur í gegnum tíðina flakkað á milli hverfa borgarinnar og mun hún fara fram í Borgarbókasafninu Gerðubergi í Breiðholti. Boðið verður upp á fjölbreytta dagskrá fyrir börn og aðstandendur þeirra frá klukkan 10:00 til 16:00 báða dagana. 

Þar verður sannkallað líf og fjör á Barnamenningarhátíð og er aðgangur ókeypis.

Öll velkomin!