Gjaldsvæði bílastæða og útfærsla gjaldskyldu endurskoðuð
Borgarstjórn samþykkti að taka gjaldsvæði bílastæða og útfærslu gjaldskyldu til endurskoðunar á fundi sínum í dag. Einnig samþykkti borgarstjórn að fara í heildarendurskoðun á þeim verklagsreglum sem fylgt er þegar breytingar eru ákvarðaðar á stækkun gjaldskyldusvæða eða útfærslu á verðlagningu og tímamörkum sem þau fylgja hverju sinni.
Eftirfarandi tillögur voru samþykktar:
- Gjald á gjaldsvæði P1 verði tekið til endurskoðunar og ráðist verði í að breyta hluta svæða P2 í P3 (þar sem ekki er gjaldskylda um kvöld og helgar).
- Útfærsla á gjaldskyldu á sunnudögum verði tekin til endurskoðunar. Gjaldskylda verði endurskoðuð á íbúasvæðum með það að markmiði að gera íbúakort sveigjanlegri og einfalda umsóknarkerfið.
- Ráðist verði í markvissa kynningu á bílastæðahúsum Reykjavíkurborgar og aðgengi að þeim.
Samráð við íbúa og hagsmunaaðila
Þegar vinnu við breytingarnar á gjaldskrá og gjaldskyldu er lokið skal senda þær í samráðsgátt áður en þær eru samþykktar enda snertir gjaldskylda alla sem koma til Reykjavíkur og íbúa borgarinnar, segir í tillögunum. Sérstaklega skal gera íbúum og hagsmunaaðilum viðvart á þeim svæðum sem breytingarnar hafa áhrif á.
Fleiri breytingartillögur komu fram við upphaflega tillögu borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins en hægt er að skoða upptöku af umræðunum á vef Reykjavíkurborgar.