Byggjum borg fyrir fólk - opinn fundur borgarstjóra um húsnæðismál

Ljósmynd Bernhard Kristinn
Ljósmynd: Bernhard Kristinn

Á opnum kynningarfundi borgarstjóra sem haldinn verður þann 20. mars næstkomandi verður meðal annars rætt um hvernig við byggjum borg fyrir fólk, borg þar sem fólk á að eiga kost á öruggu heimili, góðum lífsgæðum og raunhæfum valkostum, óháð stöðu eða efnahag.

Opinn fundur borgarstjóra um húsnæðismál verður haldinn í Ráðhúsi Reykjavíkur föstudaginn 20. mars kl. 9:00-10:30. Húsið opnar kl. 8:30, boðið verður upp á léttan morgunverð. 

Farið verður yfir stöðuna á húsnæðismarkaði, uppbyggingu í hverfum borgarinnar og nýjar leiðir í skipulagi. Markmiðið er skýrt: að tryggja gæði í hinu byggða umhverfi, auka framboð íbúða og byggja mannvæna, sjálfbæra borg til framtíðar.

 

Byggingavinna á Ártúnshöfða
Byggingavinna á Ártúnshöfða.                                                              Ljósmynd Róbert Reynisson

Dagskrá:

  • Heiða Björg Hilmisdóttir, borgarstjóri
    Borgin sem við byggjum
    Áherslur og sóknarfæri Reykjavíkurborgar, samstarfsverkefni og húsnæðisáætlun.
  • Úrslit skipulagssamkeppni fyrir Halla og Hamrahlíðarlönd
    Niðurstaða úr skipulagssamkeppni kynnt. Verðlaunahafi segir frá sinni hugmynd.
  • Margrét Lilja Gunnarsdóttir, formaður starfshóps um innviðafélag
    Undirbúningur samstarfs um þróun og uppbyggingu fyrir nýtt hverfi í Höllum
    Hver er staðan á undirbúningi fyrir innviðafélag um þróun og uppbyggingu fyrir nýtt hverfi í Höllum?
  • Tinna Stefánsdóttir, teymisstjóri hjá Reykjavíkurborg
    Uppbygging á Ártúnshöfða
    Íbúafjöldi á fullbyggðum Höfðanum verður álíka og í Garðabæ. Hvernig gengur að breyta iðnaðarsvæði í íbúabyggð?
  • Ingvi Jónasson, framkvæmdastjóri Klasa
    Borgarhöfði
    Uppbygging Klasa til næstu ára og framtíðarsýn. Blönduð byggð í miðju höfuðborgar.
  • Þórhildur Bryndís Guðmundsdóttir, arkitekt
    Kjarnasamfélög í Breiðholti og miðborg
    Hvernig hafa kjarnasamfélög birst í húsnæðissögu Reykjavíkur. Sagt frá tilraunaverkefni og lóðum sem boðnar verða undir kjarnasamfélög.   
  • Líf G. Gunnlaugsdóttir, verkefnastjóri hjá umhverfis- og skipulagssviði
    Meginferlar húsnæðisuppbyggingar
    Meginferlar borgarmótunar þjóna þeim tilgangi að samræma og samstilla vinnubrögð. Hvernig getum við átt skýrara samtal um fyrirkomulagið og hvaða áherslum á að ná fram?

    Fundarstjóri er  Líf Magneudóttir, borgarfulltrúi.

Öll velkomin!