Byggjum borg fyrir fólk - opinn fundur borgarstjóra um húsnæðismál
Á opnum kynningarfundi borgarstjóra sem haldinn verður þann 20. mars næstkomandi verður meðal annars rætt um hvernig við byggjum borg fyrir fólk, borg þar sem fólk á að eiga kost á öruggu heimili, góðum lífsgæðum og raunhæfum valkostum, óháð stöðu eða efnahag.
Opinn fundur borgarstjóra um húsnæðismál verður haldinn í Ráðhúsi Reykjavíkur föstudaginn 20. mars kl. 9:00-10:30. Húsið opnar kl. 8:30, boðið verður upp á léttan morgunverð.
Farið verður yfir stöðuna á húsnæðismarkaði, uppbyggingu í hverfum borgarinnar og nýjar leiðir í skipulagi. Markmiðið er skýrt: að tryggja gæði í hinu byggða umhverfi, auka framboð íbúða og byggja mannvæna, sjálfbæra borg til framtíðar.
Dagskrá:
- Heiða Björg Hilmisdóttir, borgarstjóri
Borgin sem við byggjum
Áherslur og sóknarfæri Reykjavíkurborgar, samstarfsverkefni og húsnæðisáætlun. - Úrslit skipulagssamkeppni fyrir Halla og Hamrahlíðarlönd
Niðurstaða úr skipulagssamkeppni kynnt. Verðlaunahafi segir frá sinni hugmynd. - Margrét Lilja Gunnarsdóttir, formaður starfshóps um innviðafélag
Undirbúningur samstarfs um þróun og uppbyggingu fyrir nýtt hverfi í Höllum
Hver er staðan á undirbúningi fyrir innviðafélag um þróun og uppbyggingu fyrir nýtt hverfi í Höllum? - Tinna Stefánsdóttir, teymisstjóri hjá Reykjavíkurborg
Uppbygging á Ártúnshöfða
Íbúafjöldi á fullbyggðum Höfðanum verður álíka og í Garðabæ. Hvernig gengur að breyta iðnaðarsvæði í íbúabyggð? - Ingvi Jónasson, framkvæmdastjóri Klasa
Borgarhöfði
Uppbygging Klasa til næstu ára og framtíðarsýn. Blönduð byggð í miðju höfuðborgar. - Þórhildur Bryndís Guðmundsdóttir, arkitekt
Kjarnasamfélög í Breiðholti og miðborg
Hvernig hafa kjarnasamfélög birst í húsnæðissögu Reykjavíkur. Sagt frá tilraunaverkefni og lóðum sem boðnar verða undir kjarnasamfélög. - Líf G. Gunnlaugsdóttir, verkefnastjóri hjá umhverfis- og skipulagssviði
Meginferlar húsnæðisuppbyggingar
Meginferlar borgarmótunar þjóna þeim tilgangi að samræma og samstilla vinnubrögð. Hvernig getum við átt skýrara samtal um fyrirkomulagið og hvaða áherslum á að ná fram?
Fundarstjóri er Líf Magneudóttir, borgarfulltrúi.
Öll velkomin!