Opnað fyrir umsóknir um matjurtagarða í Reykjavík

Matjurtagarðarnir eru í boði í Vesturbæ, Fossvogi, Meðalholti, Laugardal, Árbæ, Grafarvogi og Kjalarnesi við Fólkvang. Mynd/Bernhard Kristinn
Matjurtagarðar

Opnað verður fyrir umsóknir Reykvíkinga um matjurtagarða í borginni á hádegi mánudaginn 16. mars. Um 600 matjurtagarðar eru leigðir út á vegum borgarinnar, þar af eru tæplega 200 í Skammadal. Matjurtagarðarnir eru í boði í Vesturbæ, Fossvogi, Meðalholti, Laugardal, Árbæ, Grafarvogi og Kjalarnesi við Fólkvang. Matjurtagarðarnir verða opnaðir 1. maí. Sótt er um í gegnum „Mínar síður“ á vef Reykjavíkurborgar.

Tækifæri til að rækta eigið grænmeti

Garðarnir verða merktir. Vatn er aðgengilegt á öllum svæðum. Garðáhöld, plöntur og útsæði fylgja ekki með görðunum. Fyrir byrjendur má geta þess að algengast er að fólk rækti kartöflur og alls konar kál og rófur. Einnig er gott að hafa í huga að hægt er að nálgast forræktað grænmeti í allflestum gróðrastöðvum.

Leigugjöld ársins 2026 eru 7.760 kr. fyrir garðland í Skammadal (um 100 fermetrar) og 6.420 kr. fyrir garð (um 20 fermetrar). Kassar í Grafarvogi, Árbæ, Fossvogi, Meðalholti og Kjalarnesi verða á kr. 5.180 kr. kassinn (8 fermetrar).

Í Meðalholti, sem er ný staðsetning, eru þrettán kassar, þar af eru fjórir aðgengilegir matjurtakassar hentugir fólki sem notar hjólastóla, göngugrindur eða eiga erfitt með að vinna á hnjánum.

Ókeypis fræðsla hjá Reykjavíkurborg

Í Grasagarði Reykjavíkur í Laugardal er boðið upp á ýmsa fræðslu eins og í hádegisgöngunum sem eru alla föstudaga í júní, júlí og ágúst. Þær taka hálftíma og eru klukkan 12.00 á íslensku og 12.40 á ensku. Þær eru líka kjörið tækifæri til að spyrja starfsfólk garðsins um matjurtaræktun.

Grasagarðurinn ætlar líka að bjóða upp á fræðslu um sáningar og umhirðu matjurta og sumarblóma miðvikudaginn 25. mars kl. 17.00. Fræðslan fer fram í garðskálanum og er ókeypis. Fullkomið fyrir þau sem ætla að stunda garðrækt í sumar að kíkja við og fá fræðslu frá sérfræðingunum um réttu handtökin svo uppskera og blómgun verði ríkuleg.